Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1980, Page 64

Náttúrufræðingurinn - 1980, Page 64
slóðum og það gaeti jafnvel hugsast að ég hefði skoðað þennan stað svolitið oftar og jafnvcl nokkru betur en G.L. Auk þess benti ég bæði Sigurði Þórarinssyni og Guðrúnu Larsen á þennan stað einmitt vegna þess hvað þar má fá góð snið fyrir öskulagarann- sóknir. Ég valdi þarna einn ákveðinn stað fyrir jarðvegssnið einfaldlega vegna þess að í fyrsta lagi var sniðið þarna hreinna en víðast hvar annars staðar þ.e.a.s. minna lá þar utan í af jarðvegstorfum, sem nýlega hefðu sigið niður vegna þess að vatnið hefur grafið bakkann, í öðru lagi vegna þess að þarna eru mólögin óhreyfð allt frá yfirborði hraunsins og upp að malarlaginu og i þriðja lagi vegna þess að þarna má sjá jarðlögin liggja á hrauninu sjálfu, en þau hafa að sjálfsögðu ekki tekið umtalsvert að myndast fyrr en löngu eftir að hraunið var kalt orðið. Þéttleiki neðstu jarðlaganna stafar að sjálfsögðu af því einu að ofan á eru um 10 m þykk jarðlög enda er það svo að birkistofn- arnir neðantil í rofinu eru orðnir flatir undan þunga jarðlaganna. Að um hitaáhrif frá hrauninu sé að ræða er hugmynd sem er jafn furðuleg sem fráleit. Að bólstramyndun komi fyrir í Landbrotshrauninu er nokkuð, sem ég hef bent á fyrir löngu enda er það eðlilegt þar eð hraunið hefur runnið yfir votlendi. G.L. segir á bls. 24 að svo geti verið að „tota úr Landbrotshrauninu hafi troðið sér inn í eldri jarðveg, eins og víöar við hraun- jaðarinn á þessu svæði“. Það væri nú óneitanlega nokkurs virði að fá að vita hvar þeir staðir eru þar sem þetta hefur sannanlega gerst. Að mínu mati á þessi ítroðsluhug- mynd G.L. ekki fremurskylt við ncitt annað en það sem nefnt hefur verið vísindaskáld- skapur (science fiction). Þar sem engar staðreyndir liggja fyrir má segja að leyfilegt sé að láta hugmynda- gamminn geysa jró jrví aðeins að taka fram að svo sé gert og engar kröfur gerðar til þess að málið sé tekið alvarlega. Einfaldast er jró og heilbrigðast að láta málið afskiftalaust í von um að síðar rætist úr. Ef ákveðnar niðurstööur eru rengdar af einhverjum ástæðum, [sá er það bæði vísindaleg og sið- ferðileg skylda jress, sem |>aö gerir, að benda á staðreyndir máli sínu til stuðnings og jafn- framt gera sér fulla grein fyrir Jrví hvað staðreynd er. Jón Jónsson. HEIMILDIR Larsen, Guðrún (1979). Um aldur Eldgjár- hrauna. Náttúrufr. 49 (1), 1—26. Jónsson, Jón (1975). Nokkrar aldursákvarð- anir. Náttúrufr. 45, 27 — 30. Jónsson, Jón (1978). Eldstöðvar og hraun í Skaftafellsjringi. Náttúrufr. 48, 196-230. SUMMARY Four C14 datings of a soil overlying the Landbrot lava at Dalbær (Jónson 1975, 1978) indicate that Larsen’s (1979) view concerning the age of this lava flow is not acceptable. Jón Jónsson National Energy Authority Reykjavík. 318

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.