Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1985, Síða 8

Náttúrufræðingurinn - 1985, Síða 8
3. mynd. Leit að rafleiðandi hlut með lijálp útvarpsbylgja frá fjarlægum sendi. Endur- kastaða bylgjan er mun dauf- ari en hin upprunalega. Stefnuloftnet mælir út- breiðsluátt fyrir summu bylgj- anna á hverjum stað. - Principle of homogeneous source (VLF, etc.) prosp- ecting. anna vegna kafbátafjarskipta. Til að ná sem bestum merkjum frá þeim (3. mynd) þarf að halla loftneti tækisins í sérstaka átt, og breytist hallinn ef endurköstuð bylgja að neðan bætist við þá upprunalegu. Hitt tækið er svokölluð íssjá (Helgi Björnsson 1977) sem var notuð með góðum árangri á árinu 1983 við leit að flugvélum í ísfrera Grænlands. Hún vinnur við tíðnina 3 megarið, og á markaði til jarðvegsrannsókna eru svipuð tæki með 120 megariða sendi- tíðni. í stuttu máli sagt hefur þó sand- urinn við Skeiðarárósa reynst alltof vel rafleiðandi til þess að treysta megi þessum aðferðum óbreyttum við leit að málmhlutum þar. Þróun og prófun sérhæfðs tækjabúnaðar af þessu tagi, sem komið gæti að notum þar eystra, yrði talsvert kostnaðarsöm. RAFLEIÐNI- OG SPENNUMÆLINGAR Óreglur í rafleiðni jarðvegs, sem hugsanlega gætu stafað af fornum mannvistarleifum, má einnig kort- leggja á þann hátt, að í jarðveginn er stungið tveim rafskautum. Mældur er sá straumur, sem senda má milli þeirra úr rafhlöðu eða öðrum straumgjafa, og um leið mæld rafspennan sem fram kemur á afmörkuðu bili mitt milli skautanna (4. mynd a). Breytingar á hlutfalli straums og spennu, sem kunna að sjást við flutning þessa bún- aðar af einum stað á annan, geta staf- að af því að rafstraumurinn stytti sér leið gegnum vel rafleiðandi hlut eða svæði í jarðveginum. Eins og flestum lesendum er eflaust kunnugt, er svipuð aðferð mjög mikið notuð við könnun íslenskra jarðhita- svæða (Axel Björnsson 1980). í forn- minjaleit hefur hún víða komið að gagni, einkum við að finna forna skurði. Má nefna um það merk dæmi, svo sem við kortlagningu horfinna byggða frá dögum Grikkja og Róm- verja (Aitken 1974). Aðferðin er hinsvegar allt of tíma- frek til þess að henni sé hægt að beita á annað en fornminjasvæði sem þegar hafa fundist með öðrum aðferðum. Leiði jarðvegurinn of vel rafmagn, með moldarsýrum eða söltu jarðvatni, til þess að teljandi brot af raf- straumnum nái niður í þann hlut sem 54

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.