Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 11

Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 11
MÆLING 23 ftPR. 1982 6. mynd. Stærð frávika í segulsviðsstyrk, miðað við 51960 nT ótruflað meðalsvið, á stað á Skeiðarársandi þar sem síðar var grafið niður á skipsflak. Hámarksgildi (í 2,2 m hæð) var um 1200 nT. - Contour map of total-field magnetic survey results, SE-Iceland. Good approximation was obtained by a source ofthree point objects at 13 m dept, totalling 60-106 G-cm3. eigu Orkustofnunar m. a. notaður til sambærilegrar leitar 1968, þegar fannst sá hluti járnfarmsins úr skipinu Persier, sem grafist hafði í sandinn sunnan Hjörleifshöfða nieðan á mála- ferlum um eignarrétt stóð. Við ítarlegar segulsviðsmælingar, sem gerðar voru á línum með 50 m millibili vestan til á Skaftafellsfjöru 1974-75, kom fram 54 nT frávik í 5,5 m hæð í 500 m fjarlægð frá sjó. Það gat bent til nokkurra tuga smálesta járns á u. þ. b. 18 m dýpi, og gat það komið heim við það sem vitað er um járn (í byssum, kúlum, akkerum, festingum o. fl.) um borð í Het Wapen. Ekkert fannst þó við gröft, og má helst gera sér í hugarlund að sandurinn hafi þar segulmagnast af náttúrulegum or- sökum á borð við eldingu. Við mælingar austan Skeiðarár haustið 1981 kom fram segulfrávik (6. mynd) sem benti til 150-400 smálesta járns á 13 m meðaldýpi í sandinum. Þetta þótti fullmikið magn til að geta átt við um járnhluti í Het Wapen, en ekki var þó útilokað að frávikið gæti að mestu stafað af járni í kjölfestu þess skips (sbr. Marsden 1974) eða af um- myndun minna járnmagns við að liggja í brennisteinsríku vatni. Sem kunnugt er, reyndist þarna vera um flak annars og mun yngra skips að ræða, en væntanlega er leitinni að þessu sögulega Indíafari ekki þar með lokið. AÐRAR AÐFERÐIR Til eru fleiri mæliaðferðir í jarðeðl- isfræði, sem öðru hverju hafa kornið til álita vegna leitar að fornminjum. 57

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.