Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1985, Síða 12

Náttúrufræðingurinn - 1985, Síða 12
Ein slíkra eru þyngdarsviðsmælingar, þar eð misþung efni í jarðskorpunni valda staðbundnum óreglum í stefnu og styrk þyngdarsviðs jarðar. Þessi áhrif eru hinsvegar svo lítil, að með bestu fáanlegum tækjum er vart hægt að verða var við myndanir, sem eru innan við 50 m á hvern veg, nema með mjög mikilli fyrirhöfn. Einnig hefur mæling á geislavirkni verið nefnd sem leitaraðferð. Sá hæng- ur er á henni, að agnageislar (a og þ) komast ekki nema sentimetra eða svo niður í jarðveg, en ljóseindir (y- geislar) eða geimgeislar endurkastast ekki frá hlutum í jörðu. Mælingar á mjög daufri geislavirkni fornminja, sem gera má í sérstökum tækjum í rannsóknastofum, geta hinsvegar veitt mikilsverðar upplýsingar um aldur þeirra. Eru þesskonar mælingar annað þýðingarmikið framlag eðlisfræðinnar til fornleifarannsókna, en þeim verða ekki gerð skil í þessari grein. LOKAORÐ Þegar þetta er skrifað í apríl 1984, hefur enn ekki náðst tilætlaður árang- ur af leitinni að Het Wapen van Amst- erdam. Verið getur, að flakið sé enn í sandinum, en hafi ekki komið fram á tækjum vegna þess að þau séu ekki nógu næm eða ekki hafi verið mælt í námunda við flakið. Einnig er hugsan- legt, að strandstaðurinn sé nú úti í sjó eða flakinu hafi skolað þangað í Skeiðarárhlaupi. Leitin hefur að mörgu leyti verið einstök framkvæmd í sinni röð á ís- landi. Það sem leitað er að, á sér varla hliðstæðu, og landfræðileg skilyrði eru einnig mjög óvenjuleg. Tækni til mæl- inga, ferða um sandflæmin, staðsetn- inga þar, og borana tii að kanna orsak- ir mælifrávika, hefur verið í framþró- un; má jafnvel segja, að ennþá sé nokkuð í land til þess að viðunandi líkindi séu á að eitthvað finnist og bjargist af skipinu með viðráðanlegum kostnaði. Segulsviðsmælingar eru enn sem komið er vænlegasta leitaraðferð- in, og má verulega bæta framkvæmd þeirra. Með stærri þjóðum starfa fyrirtæki á sviði margskonar tækni og vísinda, sem framkvæmt gætu sérhæfða þætti leitarstarfs af þessu tagi. Slíkt út- heimtir þó ávallt kostnaðarsaman und- irbúning, ekki síst við val og prófun mælitækja. Hafa ísienskar stofnanir af ýmsum ástæðum ekki getað tekið að sér þá rannsóknastarfsemi fyrir þetta einstaka verkefni. Hins vegar hefur þátttaka þeirra eða aðstoð við leitina að Het Wapen veitt íslenskum vísinda- mönnum ýmsa reynslu og orðið hvati til rannsókna sem haft geta víðtækara gildi. Eflaust eiga eftir að finnast marg- háttaðar rnerkar fornntinjar á íslandi og við strendur þess. Væntanlega geta jarðeðlisfræðiaðferðir átt þátt í fundi og rannsókn þeirra, og gæti þá reynsla og þjálfun frá „gullskips“-leitinni orð- ið þar nokkur bakhjarl. Hér sem víðar reynir á það, að nægur skilningur sé á nauðsyn ítarlegra grundvallarrann- sókna til undirbúnings slíkum fram- kvæmdum. ÞAKKARORÐ „Gullskips“-mönnum á Skeiðarársandi eru þökkuð ánægjuleg kynni, margar fróð- legar viðræður um forsendur leitarinnar að Het Wapen, og samvinna við mælingar þar. Sérstaklega vil ég þakka Jóni Jónssyni, jarðfræðingi. HEIMILDIR Aitken, M. 1974. Physics and Archeology, 2. útg. - Oxford University Press, Ox- ford: 291 bls. Axel Björnsson 1980. Jarðhitaleit og rann- 58

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.