Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 30

Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 30
3. mynd. Jarðvegslög í rofaskurði vestan við Leiðólfsfell. Skóflan stendur við ljósu ösku- lögin tvö, sem aldursákvörðuð eru, en gröfturinn endar við þykka vikurlagið frá gosinu (1112?) til vinstri. — A soil section west of mt. Leiðólfsfell. The spade stands at the two light tephra layers which have been C14 dated. The upper end of the digging is at the thick tephra layer (perhaps from 1112) to the left. (Ljósm/p/joío Jón Jónsson). Ekki verður í það ráðið hvaða hraun það kann að vera sem klerkur taltli vera frá sögulegum tíma og heimildir þær sem hann hafði virðast glataðar. DRAUMUR JÓNS STEINGRÍMS- SONAR OG SÖGNIN UM TÓLFAHRING I ævisögu sinni segir Jón Steingríms- son (útg. 1973 bls. 192-193) frá draumi er hann dreymdi líklega snemma árs 1783. Hann dreymdi mann er kvaðst heita Eldriðagrímur og hafa komið ofan af fjöllum. „Ég kom hingað áður sama veg, í tíð Sæmundar fróða“ Ég spyr, hvort hann muni það ár, hverju hann játar og segir: „Það var 1112“. Finn ég síðar í annálabók einni, að það ár var hér eldgangur mikill, sem skemmdi land og byggðir". I viðbæti við hið merka rit sitt um Skaftárelda hefur séra Jón Steingríms- son tekið sarnan skrá yfir býli, í Vest- ur-Skaftafellssýslu, þau er lagst hafa í eyði á umliðnum öldum, tekur fram orsakir eyðingarinnar og tilgreinir ár- töl eftir þeim heimildum, sem honum voru kunnar (í Safn til sögu íslands IV) segir: „í Búlandssókn eða norðast í Skaptártungu 1112 eða þar um bil eyðilagðist lieil byggð með 12 bæj- um af of miklu öskufalli, svo aldrei kunna aptur að byggjast, þá er hálf- bevísanlegt, að hér hafi eldur fram- komið og hraunspýju eftir sig látið. Þar þessi byggð var, sjást enn til 76

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.