Náttúrufræðingurinn - 1985, Side 32
Cm 0
k/élilháéL
50-
SKYRINGAR:
Mold
Svört aska
Ljós aska
Gróleit aska
Grófur vikur
Ö. 1362
100
JARÐVEGSSNIÐ VIÐ
LEIÐÓLFSFELL
5. mynd. Jarðvegssnið á sama
stað og 4. mynd. — A soil
section at same place as fig. 4.
Skaftáreldahrauni. Hefur verið talið
að það væru gervigígir, en hversu ör-
ugg sú niðurstaða er, skal ósagt látið.
Mjög greinilegt er hvernig Skaftár-
eldahraun hefur runnið kringum þessi
eldri eldvörp og skilið eftir óbrennis-
hólma (6. mynd). Stærsti gígurinn á
þessu svæði er sem næst beint vestur af
gangnamannakofunum vestan undir
Leiðólfsfelli. Hann er um 15—20 m
hár yfir umhverfið (7. mynd). Skammt
þar frá má sjá hvernig Skaftárelda-
hraun hefur í mjóum taumum fallið
yfir hluta af þessum eldstöðvum, en
þær má rekja þarna um rösklega kíló-
metra leið (1. mynd).
Svo er að sjá sem lítið eða jafnvel
ekkert hraun hafi runnið úr syðstu gíg-
unum og virðist því líklegast að vikur-
og gosmalarlagið, sem þarna er svo
áberandi hafi úr þeim komið. Þetta
gæti þýtt að gosið hafi byrjað norðar
og færst suðureftir og því væri ösku-
lagið fínt neðst en vikur ofantil.
HRAUNIÐ
Bergið í hrauni þessu er dökkgrá-
leitt, fínkornótt og með strjálum felt-
spatdílum, sem eru um 1 mm'stórir.
Aðrir dílar sjást ekki með berum aug-
um að fráteknum einstaka samsettum
dílum, sem þá geta náð því að vera
1,5-2 mm. Þeir eru samvaxnir úr pla-
gióklasi og stundum pýroxeni, en
trauðla verður það greint nema með
nokkurri stækkun.
Samsetning þessa hrauns borin sam-
an við Skaftáreldahraun fylgir hér á
eftir í töflu 1.
Þarna er um að ræða meðaltal fyrir
margar athuganir. Eins og sjá má eru
þessi hraun harla lík, en það gildir
raunar um fjölda hrauna á þessu svæði
að munur frá einu hrauni til annars er
ekki meiri en munur, sem fundist get-
ur innan eins og sama hrauns. Geta
má þess að eitt af því sem telja mætti
einkenni bæði Skaftáreldahrauns og
Leiðólfsfellshrauns er að í báðum
koma fyrir einstaka tiltölulega stórir
ólivíndílar. Einu hraunin á svæðinu
austan Skaftár, sem vitað er að skeri
sig verulega úr eru Lambavatnshraun
og Kambahraun.
í þær athuganir, sem liggja til grund-
vallar fyrir þessu greinarkorni var ekki
hægt að verja nema tveim dagsstund-
um á síðastliðnu sumri (1983). Það
sýnist þó fullljóst að enn vantar á að
þetta svæði sé nægilega vel kannað.
AÐ LIÐNU ÁRl
Frá því að þetta var skrifað er nú
liðið nokkuð meira en ár. Á þeim tíma
hefur einkum tvennt gerst það er varð-
ar eldstöðina við Leiðólfsfell.
78