Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1987, Page 35

Náttúrufræðingurinn - 1987, Page 35
flug fór hann að raula finnskt þjóðlag. í því að hann byrjaði að raula mynd- uðust nokkrir sveimar yfir sveim- merkjum umhverfis hann. Jaakko endurtók þetta nokkrum sinnum og í hvert skipti sem hann hóf þjóðlagið flugu karlflugurnar upp og mynduðu sveima. Það var einungis við upphafs- nótu þjóðlagsins sem sveimarnir mynduðust, og karlflugurnar sveim- uðu í nokkrar sekúndur eftir að upp- hafstónninn dó. Síðar kom í ljós að upphafstónn þjóðlagsins er um 300 sveiflur á sek- úndu sem er að öllum líkindum væng- sláttartíðni kvenflugna S. exterma. Þessi uppgötvun auðveldaði Jaakko mjög athugun á sveimum karlflugn- anna og pörun rykmýsins. Þegar lygnt var hófu kvenflugur sig við og við á loft í nágrenni sveimmerkja og flugu þá gjarna í lágum sveig yfir sveim- merkið. Nær samstundis og kvenfluga var komin á loft flugu karlflugurnar upp og söfnuðust saman yfir sveimmerkinu. Karlflugurnar héldu áfram sveimfluginu þangað til einhver karlflugan náði kvenflugunni og hóf mökun við hana. En ef engin karlfluga náði kvenflugunni á skömmum tíma, þá lenti kvenflugan og karlflugurnar snarlega þar á eftir. Þegar karlfluga náði kvenflugu í sveimnum virtist mökun hefjast og parið lenti þá nær samstundis á jörð- inni. Mökun hélt þó alla jafna áfram í nokkrar mínútur. í því harðbýla landi sem Svalbarði er, þar sem vindar eru tíðir og lágur hiti algengur yfir sumartímann, virðist þessi samstilling kynjanna við mökun- arflugið vera mjög orkusparandi að- lögun. Þegar karlflugurnar bíða kyrrar umhverfis sveimmerkin eru þær vafa- lítið að hlusta eftir kvenflugum. Á milli vindhviða fljúga karlflugurnar einungis mökunarflug ef í nágrenni sveimmerkis þeirra er kvenfluga sem er tilbúin til mökunar. Þannig eyða karlflugurnar hvorki orku sinni í flug við erfið skilyrði né þegar engin kven- fluga er móttækileg fyrir „svermiríi“ þeirra, en eins og fyrr segir gefa kven- flugurnar sig fram með því að fljúga í lágum sveig yfir sveimmerki. Ýmsar tegundir rykmýs makast þó ekki í sveimum heldur fer pörun og mökun fram á föstu undirlagi t.d. á grjóti. Það á til dæmis við um tegund- ina Eukiefferiella minor, sem algeng er á strandsvæðum stöðuvatna og í ám. E. minor er meðal annars algeng í Laxá í Mývatnssveit. Hjá þeirri tegund fer pörunin þannig fram að karlflugur rjúka á þær kvenflugur sem þeir geta nálgast og reyna að læsa ytri kynfærum sínum um kynfæri kvenflugnanna. Ef kvenflugan er ekki tilbúin til mökunar hleypur hún undan karlflugunni sem þá reynir fyrir sér annars staðar. Ef kvenflugan er tilbúin til mökunar teng- ir parið saman kynfæri sín og karlflug- an helst þá stundum ofan á kvenflug- unni og snúa þær framendum í sömu átt. Oft kemur þó fyrir að karlflugan skrönglast ofan af kvenflugunni og stendur þá til hliðar við hana ellegar að flugurnar snúa saman afturendum sem tengdir eru á kynfærunum. Þann- ig haldast flugurnar samtengdar í nokkrar mínútur. FÆÐUNÁM FLUGNANNA Löngum hefur verið talið að ryk- mýsflugur nærðust ekki. Algengt er þó að sjá þær á kafi í ýmsum blómum eða reklum trjáa. Ef marka má munnlimi flugnanna, sem eru mjög lítilfjörlegir, þá virðist sem fæðunámi flugnanna sé 29
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.