Náttúrufræðingurinn - 1987, Blaðsíða 94
5. mynd.
(a) Lækkun sjávarbotns út frá miðhafs-
hrygg skv. jöfnu (1). Flatarmálið undir
ferlinum er þriðjungur flatarmáls umritaðs
rétthyrnings.
(b) Einfaldað líkan af íslandi þar sem
framleiðni er jöfn eftir endilöngu gosbelt-
inu. Landið er 1040 m hátt eftir mið-
hryggnum en hverfur í sæ við austur- og
vesturströndina.
(c) Líkan þar sem framleiðni breytist eftir
endilöngu gosbeltinu og er mest um mið-
bik landsins. Pá fæst útlína sem minnir á
elstu kort af íslandi. Rúmmálstap er hins
vegar hið sama og í (b), % þess sem mynd-
ast við hrygginn.
(a) Lowering of the sea floor away frorn a
spreading ridge, according to eq. (1). The
area below the curve is one third that of a
circumscribed rectangle.
(b) A simplified model for Iceland, with
uniform productivity along the rift zone.
The elevation of the crest is 1040 m, and the
land sinks below sea level in the East and
West.
(c) Model in which productivity along the
rift zone is variable, with maximum in the
centre. The ensuing outline suggests Medie-
val maps of Iceland.
ROFHRAÐI ÚT FRÁ AURBURÐ-
ARMÆLINGUM
Haukur Tómasson (1986) hefur
áætlað að straumvötn íslands beri 50
milljón tonn af seti til sjávar á ári
hverju. Ef eðlismassi setkornanna er
2,7 tonn/m3 svarar þetta til tæplega
0,02 km3 af bergi á ári. í þessum tölum
er framburður með jökulhlaupum
meðtalinn, en ekki botnskrið, sem í
jökulhlaupum er talið geta numið
a.m.k. fjórðungi á við gruggið, en
stundum allt að jafnmiklu (Sigurður
Þórarinsson 1974, bls. 165).
Mælingar á aurburði í tveimur
Grímsvatnahlaupum, 1938 (Sigurður
Þórarinsson 1974, bls. 165) og 1972
(Haukur Tómasson 1974, Sigurður
Þórarinsson 1974, bls. 204) benda til
þess að framburður í hlaupi sé um 14,5
milljón tonn á hvern km3 af vatni. I
Grímsvötn safnast um 0,7 km3 af vatni
á ári hverju (Helgi Björnsson 1974)
sem jafngildir um 10 milljón tonnum
af seti á ári, eða um fimmtungi af
heildaraurburðinum. Botnskrið í
Grímsvötnum einum gæti því hækkað
heildartöluna um 10—20%, og séu
önnur jökulhlaup meðtalin mætti ætla
að 0,025 km3/ár væri nærri lagi um
framburð fallvatna á íslandi. Veru-
legur hluti af framburði jökulhlaupa
sest til á sandaurunum milli fjalls og
fjöru og veldur þannig landsigi með
tímanum (sjá síðar). Til samanburðar
við áætlaðan framburð, 0,025 km3/ár,
var framleiðni gosbeltanna áætluð
0,042-0,045 km3 á ári.
88