Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1987, Blaðsíða 19

Náttúrufræðingurinn - 1987, Blaðsíða 19
Steingrímsson ásamt fleirum, og hefur skráð eftirfarandi lýsingu: „Undirjarðareldsumrótið horfði ég á, sem fleirum er kunnugt, fyrst belgdi jörðin upp með orgi og vindskurki nið- ur í henni, sprengdi hana svo í sundur, reif hana og tætti, sem þá ólmt dýr sundurrífur eitthvað, þá stóð logi og bál upp úr hverjum áminztum hraunhól. Stórar hellur og grasflúðir fleygðust þá í lopt upp ósegjanlega hátt til og frá með stórum smellum, eldingum, sandgus- um, reyk og svælu.“ (Jón Steingrímsson 1902-1915, bls. 20). Það sem virðist hafa villt sýn ýmsum þeim er skoðað hafa jarðvegssniðið við Dalbæ er, að flekar úr jarðvegi, með áður nefndum öskulögum og gróðurleifum koma fyrir ofar í rofinu, þ. e. ofan við hin reglulegu mólög. Þau liggja á ýmsa vegu og hafa sýni- lega endastungist og velst um. Augljóst er að hefði hraunið orsakað þvílíkt rót, þá hlaut það að verða mest næst hrauninu. En hvað gerði rótið ofar í sniðinu? HVERNIG OG HVENÆR VARÐ RÁS TIL? Þann 19. júlí 1783 „féll eldflóð yfir hús í Dalbæ og upp brendi þau og mikið af túni“ segir séra Jón Stein- grímsson. Enn sjást rústir bæjarins í óbrennu inni í hrauninu skammt norðan við núverandi bæ, og kallast Gömlutún. Um þann minnisverða at- burð þegar hraunið stöðvaðist í farvegi Skaftár þann 20. júlí 1783, skrifar séra Jón m.a.: „Holtsá og Fjaðrá hlupu fram yfir þær stíflur, er það nýja hraun hafði gert þeim, og í mestu flugferð kæfðu nú eldinn er rumlandi og rennandi var í árfarveginum, og hljóp svo fram af áður téðri dyngju með fossum og iðu- kasti. Vatn þetta var svo mikið, að áin var hreint ófær á hestum allan daginn eptir undan Klaustrinu." í viðbæti við ævisögu sína (Jón Steingrímsson 1973, bls.14) telur séra Jón upp jarðir, sem eyðst hafa í Vestur Skaftafellssýslu. Þar segir m. a. um Hunkubakka: „Þykkvabæjarklausturs jörð. Þeirra jarðar hús enn uppistandandi, en upp- brunnið mestallt tún, engjar og hagar austur með ánni.“ Um Hólm segir þetta: „Skálakirkju jörð. Sú jörð eður hús umflotin afheitu vatni, og eldhrauni allt að norðan, framvegis óbyggilegt þar sem stendur.“ Við eldrit sitt lauk séra Jón þann 24. nóvember 1788 (áður nefnt rit, bls. 343). Þá voru hús á Hunkubökkum „enn uppistandandi" en „Hólmur um- flotinn af heitu vatni.“ Af þessu er ljóst að vatnið, sem braust fram yfir hraunið 20. júlí, austan við Dalbæjar- stapa, hefur farið meðfram suðurrönd hraunsins. Hefði það farið norðan megin hlaut Hunkubakkabærinn að fara í kaf, því að við Laxárfoss er klettahöfði, sem hraunið rann upp að og hefði lokað vatninu leið austur. Skaftá kemur hér ekki við sögu. Hún gufaði upp í hraununum inni á há- lendinu og kom ekki fram úr gljúfrinu hjá Skaftárdal fyrr en í september það sama ár. Það mikla flóð, sem séra Jón getur um gróf þann farveg, sem nú nefnist Rás eða Hólmsrás. Það skar sundur jarðlögin og færði þau til og bylti á ýmsa vegu, en þegar vatnið þvarr urðu móstykki eftir víðs vegar í farveginum og svo er enn. Nokkuð af þeim kann þó að vera eldra og frá þeim tíma er Skaftá fyrst braust austur um sundið milli Dalbæjarstapa og Heiðarháls og tók að renna austur með Klaustursfjalli eftir að hafa runn- ið suður Landbrot. Frá sama tíma má ætla að sé Iag það af misgrófri ármöl, sem einnig er í rofinu hjá Dalbæ. í þessu sambandi má minna á að á korti 13
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.