Náttúrufræðingurinn - 1987, Blaðsíða 78
sárasjaldgæfir við strendur V-Evrópu,
en nokkur áraskipti eru í fjölda þeirra.
Ismáfar sjást nær árlega hér við
land, einkum við norðanvert landið.
1. Breiðafjöröur, september 1840. Jónas
Hallgrímsson (1935). Jónas getur þess, að
fugl þennan hafi Siemsen kaupmaður í
Reykjavík fengið og sent hann til Englands.
Ekki er vitað um frekari afdrif fuglsins.
2. fsland (Grímsey?), fyrir 1863 (2 fuglar).
Newton (1864). William Proctor mun tvisv-
ar hafa fengið ísmáfa frá íslandi einhvern
tíma fyrir 1863 (Newton 1864). Slater
(1901) telur fuglana líklega frá Grímsey,
sömuleiðis Hantzsch (1905). Hachisuka
(1927) kvcður þá komna frá Grímsey og
Bjarni Sæmundsson (1936) segir báða það-
an árið 1860. E.t.v. er annar þessara fugla
sá er Jónas Hallgrímsson getur um frá 1840.
3. Grímsey, Eyf, nóvembcr 1878 (imm
ZM. 14.131). Steincke. Hamur í safninu í
Kaupmannahöfn, annar tveggja ísmáfs-
harna sem þar eru frá 19. öld. Hantzsch
(1905) kveður tvo fugla frá íslandi vera í
Kaupmannahöfn báða frá árinu 1879 og er
þetta án efa annar þeirra fugla (sjá einnig
nr. 5).
4. Reykjavík eða nágrenni, 1879. Benedikt
Gröndal (1895). Benedikt sá fugl í sölubúð
hjá Einari Jafetssyni í Reykjavík í apríl
1879. Þessa fugls er einnig getið í mörgurn
síðari heimildum. Bjarni Sæmundsson
(1936) segir fuglinn skotinn nálægt Rcykja-
vík 1879. Ekki er vitað um frekari afdrif
fuglsins.
5. ísland, haust 1889 (ad ZM.14.128). Frk.
Hansen. Hamur í safninu í Kaupmanna-
höfn, annar ísmáfshamurinn þar frá 19. öld.
Þetta er því eflaust annar þeirra fugla, sem
Hantzsch (1905) segir ranglega frá íslandi
1879. Þó getur verið, að Hantzsch hafi rétt
fyrir sér í þessu tilviki, og fuglinn sé í raun
sá sami og Bcnedikt sá í búðinni hjá Einari
Jafetssyni vorið 1879 (nr. 4 hér að ofan), og
sé rangt skráður í ZM. Slíkt er þó frcmur
ólíklegt.
6. Eyjafjörður, snemma árs 1894. Slater
(1901). Var í safni Slaters. Náðist „í byrjun
árs“ samkvæmt Hantzsch (1905).
7. Vogar á Vatnsleysuströnd, Gull, 28. nóv-
ember 1897 (ad RM Gnr.18). Benedikt
Gröndal (1901). Þessum fugli var hent
vegna skemmda fyrir 1941.
8. Kollafjarðarnes, Kirkjubólshr., Strand, 31.
desember 1902 (2 ad RM3191). Guðmund-
ur G. Bárðarson.
9. Reykholt í Reykholtsdal, Borg, 5. janúar
1903 (ad RM3192). Bjarni Sæmundsson
(1905). Fugl þessi hafði haldið sig við bæinn
í nokkra daga áður en hann náðist.
Hantzsch (1905) setur ranglega dagsetning-
una 5. júní 1903 við þennan fugl.
10. Kaldaðarnes í Flóa, Árn, 2. desember 1903
(imm). Bjarni Sæmundsson (1905).
11. Vogur á Mýrum, Mýr, 20. nóvember 1907
(imm RM3193). Bjarni Sæmundsson
(1913).
12. Húsavík, S-Þing, 16. desember 1908 (6
imm ZM.14.129). Dinesen (1926).
13. Húsavík, S-Þing, 8. nóvember 1911 (<3 imm
ZM.14.130). G. Dinesen.
14. Búðir í Fáskrúðsfirði, S-Múl, 7. desembcr
1915 (imm RM3194). Bjarni Sæmundsson
(1934). Bjarni telur fuglinn skotinn þann
10. des. 1915, en hér er fylgt dagsetningu í
aðfærsluskrá Náttúrugripasafnsins. Fuglinn
barst safninu 15. febrúar 1916.
15. Bolungarvík, N-ísf, janúar 1916 (imm
RM3195). Peter Nielsen. Samkvæmt dag-
bók Nielsens (varðveitt á Náttúrufræði-
stofnun) keypti hann fugl þennan af Ziem-
sen 9. júní 1917.
16. Þingvallasveit, Árn. FD um 5. febrúar 1916
(ad RM3196). Bjarni Sæmundsson (1934)
Bjarni telur fuglinn fundinn um 7. febrúar
1915, en hér er fylgt ónákvæmri dagsetn-
ingu í aðfærsluskrá Náttúrugripasafnsins.
Fuglinn barst safninu 20. febrúar 1916.
17. Akrar á Mýrum, Mýr, 15. nóvember 1921
(RM Gnr.1606). Bjarni Sæmundsson
(1934). Hent vegna skcmmda 1941.
18. Reykjavík, 2. janúar 1922 (2 imm). Bjarni
Sæmundsson (1934).
19. Húsavík, S-Þing, ca. febrúar 1923 (imm).
Hachisuka (1927). Var í safni Hachisuka.
Að öllum líkindum sami fugl og Hachisuka
gctur síðar að hafi verið í safni á Húsavík og
William Pálsson hafi náð (Hachisuka 1930).
20. Rcykjavík (Laugarnes), 9. janúar 1933 (d
imm RM Gnr.2336). Bjarni Sæmundsson
(1934). Bjarni segir fuglinn hafa vcrið
skotinn aðframkominn 10. janúar 1933, cn í
aðfærsluskrá Náttúrugripasafnisins stendur
að hann hafi fundist dauöur (með skotsár)
þann 9. janúar 1933. Svo gerir einnig Timm-
ermann (1949a). Fuglinum hefur líklega
vcrið hcnt fyrir 1941.
21. Grímsey, Eyf, 12. nóvember 1934 (RM
Gnr.2477). Jochum Eggcrtsson. Hent
vegna skemmda 1941.
72