Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1958, Síða 7

Náttúrufræðingurinn - 1958, Síða 7
Náttúrufr. ■ 28. árgangur - 1. hefti - 1.—56. siða - lleykjavik, april 1958 Trausti Einarsson: Landslag á Skagafjallgarði, myndun þess og aldur Skagafjallgarð nefni ég hér einu nafni fjalllendið milli Skaga- fjarðar og Austur-Húnavatnssýslu, norðan Stóra Vatnsskarðs. Að austan eru mörk fjalllendisins sjálfgefin, en að vestan liggja mörk þess svæðis, sem hér verður einkum fjallað um, vestan með Sól- heimahálsi og Stóradalshálsi. Suðurmörkin verða teygð nokkuð suð- ur fyrir Stóra Vatnsskarð. Fjallaklasi þessi nær mest rúmlega 1000 m hæð, kringum Trölla- kirkju, en er víðast nokkru lægri. Hann er mjög sundurskorinn af dölum og djúpum fjallaskörðum og við fyrstu sýn er landslagið ruglingslegt. Við nánari skoðun sjást þó ýmsar reglur, sem benda greinilega til brotlínukerfis að baki landsformunum. Þá má að- greina tvo dalaflokka, aðra gamla og tiltölulega breiða, hina unga, þrönga og djúpa, grafna niður úr botni hinna eldri. Eftir sumum gömlu dalanna runnu hraun endur fyrir löngu áður en yngri dal- irnir tóku að myndast. Þetta og fleira gerir manni kleift að rekja myndunarsögu landslagsins og raunar tel ég, að á þessu svæði séu óvenjugóð skilyrði til slíks, meðal annars vegna hraunanna. Hraun- in verða og, eftir nýrri aðferð, notuð til þess að tímasetja visst skeið í myndunarsögunni. Um myndun dala almennt og mótun landslags verður hér aðeins stiklað á stóru, málinu til skýringar. Dalir verða til, sem kunnugt er, fyrir áhrif rennandi vatns og veðrunar eða af svörfun jökla, en oft geta meiriháttar sprungur eða sprungubelti í jarðskorpunni haft verulega þýðingu fyrir dalamyndun, einkum með því að stýra vatnsrennsli í upphafi mótunarinnar. Vatnsmyndaðir dalir hafa gjarna V-laga þverskurð framan af myndunarskeiðinu, en með því að yfirborðsvatn ekki getur grafið niður fyrir sjávarmál, eru dýpinu takmörk sett og vinna vatnsins fer þá í breikkun dalsins, þannig að eldri dalir verða breiðir og

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.