Náttúrufræðingurinn - 1958, Blaðsíða 63
SKÝRSLA UM HIÐ ÍSLENZKA NÁTTÚRUFRÆÐIFÉLAG
53
Finnur Guðmundsson, dr. rer. mat., og fundarritari Þór Guðjónsson, veiði-
málastjóri.
Varaformaður minntist látinna félaga og skýrði frá starfi félagsins á liðnu
ári.
Vegna langdvalar formanns erlendis kom iiann ekki til greina við stjórnar-
kjör. Varaformaður lýsti yfir, að hann gæti ekki, vegna anna, gefið kost á sér
í stjórn félagsins. Kosnir voru í stjórn fyrir árið 1958 þeir Gunnar Árnason,
Guðmundur Kjartansson, Jóhannes Áskelsson, Sigurður Pétursson og Unn-
steinn Stefánsson. Varamenn í stjórn voru kosnir þeir Ingólfur Davíðsson og
Þór Guðjónsson. Endurskoðendur reikninga voru endurkosnir, þeir Ársæll Árna-
son og Kristján A. Kristjánsson, og Eiríkur Einarsson til vara.
Fræðslustarfsemi
Félagið gekkst fyrir 8 samkomum í 1. kennslustofu Háskólans. Þar voru flutt
jressi erindi:
7. jan. Tómas Tryggvason, jarðfræðingur: Jarðfræðiþingið í Mexico 1956.
28. jan. Guðmundur Kjartansson, jarðfræðingur: Lakagígur og Skaftár-
eldahraun. Á sama fundi var myndasýning frá fræðsluferð félagsins í Raufar-
hólshelli á næstliðnu vori.
25. febr. Sturla Friðriksson, grasafræðingur: Um jurtaleyfar frá Bergþórs-
hvoli á söguöld.
25. marz Ingimar Óskarsson, grasafræðingur: Hagræn nýting skeldýra.
29. apr. Páll Bergþórsson, veðurfræðingur: Um ský og skýjaheiti.
28. okt. N. Hovmöller, veðurfræðingur: Klimatologien i gár, i dag og i
inorgen —• en gammel videnskab og en fornyet opgave.
25. nóv. Guðmundur Kjartansson, jarðfræðingur: Lnngisjór og umhverfi hans.
Hinn 27. maí voru sýndar tvær bandarískar fræðslukvikmyndir: Afstöðu-
breytingar sjávar og Fiskirannsóknir við Flórída.
Meðalfundarsókn var 66 manns, fæstir 34, flestir 110.
Hinn 2. júní var farin fræðsluferð umhverfis Þingvallavatn undir stjórn
Sturlu Friðrikssonar og Guðmundar Kjartanssonar. Þátttakendur voru 11.
Á Uppstigningardag, 30. mal, var farin gróðursetningarferð í Heiðmörk undir
stjórn Gunnars Árnasonar og voru gróðursettar 1400 plöntur í reit félagsins.
Þátttakendur voru 8.
Þátturinn „Náttúrlegir ltludr“ var niður lagður fyrst um sinn, en á vegum
félagsins voru flutt 17 fræðsluerindi um náttúrufræði. Annaðist Guðmundur
Kjartansson útvegun þeirra. Þótti þetta í heild góður erindaflokkur.
Útgáfustarfsemi
Dr. Sigurður Pétursson var áfram ritstjóri Nátúrufræðingsins og útgáfan
var með sama hætti og árið áður.
Fjárhagur félagsins
Þess skal með þakklæti getið, að Alþingi veitti félaginu styrk til starfsemi
sinnar, að upphæð kr. 20.000,00.