Náttúrufræðingurinn - 1958, Blaðsíða 22
12
NÁT'l'ÚRUFRÆÐ INGURINN
,,vatnsráns“. Hinir einangruðu partar lorna dalsins verða þurrir
og þar geymast hraunin vel. Um Laxárdal rennur hinsvegar stöð-
ugt á, hún lækkar dalbotninn nokkuð og hraun, sem þar hafa senni-
lega verið, eru að langmestu leyti horfin. En einnig Laxárdalur
verður fyrir vatnsráni. Að sunnan skerst Þverá inn í hann og Auð-
ólfsstaðaskarð rænir vatni frá nær öllum suðurliluta dalsins, bæði
að austan og vestan, eins og áður var getið. Meginár, eins og Blanda
og Svartá, grafa djúpa en þrönga dali.
Þegar aðalþættir myndunarsögunnar eru þannig ljósir, er auð-
velt að rekja sig áfram víðar. Allt landslag Skagafjallgarðsins sýnir
hin tvö misgömlu form. Annars vegar djúp og víð skörð og víðir
dalapartar opnir í báða enda, sem stafa frá eldra skeiðinu, og liggja
um og yfir 300 m hæð, liins vegar nokkrir þröngir dalir, sem
skerast inn frá næsta láglendi. Að austan er dalur Gönguskarðsár
frá yngra skeiði. Milli Hryggjafjalls og Stakkfells hefur hann brot-
izt inn í fornan dal, sem lá samsíða Laxárdalnum. Vestan Llryggja-
fjalls liggur einangraður hluti dalbotnsins, liýj km á breidd og í
345 m hæð. Þar suður af lieitir Víðidalur og hefur grafizt þar mjórri
renna, mest 100 m á dýpt, í botn gamla dalsins. Þessi dalur, sem
hefur samband við Laxárdal um Litla Vatnsskarð (340 m), endar
í tveimur 500 m háurn, breiðum skörðum, annað, Mjóadalsskarð,
liggur yfir í Laxárdal, hitt yfir í framhald Víðidals til suðurs og
suðausturs, Valbrandsdal, sem liggur í 500 m hæð. Þröngidalur
hefur brotizt hér inn frá vestri og lækkað forna dalbotninn um 100
m. Reykjaskarð er óverulegur „innbrots“-dalur frá austri inn í
Valbrandsdal, en annars er rennsli til austurs áberandi lítið. Þröngi-
dalur, sem flytur vatn vestur í Svartá, sækir það alla leið austur á
brún Sæmundarheiðar í Skagafirði í 550 m hæð og þannig er nær
allt afrennsli af svæðinu norður af Stóra Vatnsskarði, milli Skaga-
fjarðar og Laxárdals, til vesturs og norðurs. Þetta gæti verið skýr-
ing þess að skarða- og dalahæðir eru hér um 150—200 m meiri
en vestar og norðar. Hér væri „uppland" á hinu forna dalaskeiði.
Hinum forna Víðidal má fylgja til norðurs þar til hann mætir
eystri Laxárdal við Sandfell. Á þessum slóðum sjást nokkrar leif-
ar hins forna 300 m hæðarmarks. Ambáttardalur er 280 m hátt,
vítt skarð, sem opnast vestur í Mjóadal, en þar hefur yngri dalur,
Hvammshlíðardalur, brotizt inn frá Norðurárdal. Vestar er Brunn-
árdalur með Haukaskarði, 1 km breitt sund með um 300 m botni,