Náttúrufræðingurinn - 1958, Blaðsíða 50
40
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
6. mynd. a Tolypothrix tenuis (x 000). Gulfrumur cndastæðar. (Boye-Petersen).
b. Scyionema tolypothrichoides. Efst til vinstri gróðurdúskur í hálfri stærð. Hinn
hluti myndarinnar (X 250) sýnir mismunandi gervigreiningar. Gulfrumur á
dreif um keðjuna. (Frémy).
myndast er þó ekki venjulegur mjölvi, lieldur líkist það meira
forðasykri (glykogen), þeim sem myndast í dýrum. í litfryminu
sjást oftast nokkur smákorn, sem stundum er skipað niður á vissan
liátt, svo að einkennandi er fyrir tegundina. Flest þessi lcorn eru
vafalaust forðanæring, sum úr kolvetnum, en önnnr úr eggjahvítu-
efnum.
Miðfrymið líkist mjög litfryminu að gerð, en er litlaust. Á dreif
um það eru kirnisýrusambönd mjög lík þeim, er finnast í litni og
litþráðum venjulegra frumukjarna. Útlit er því fyrir, að miðfrym-
ið fari með hlutverk kjarnans, enda þótt gerð þess sé einfaldari.
Vantar það bæði kjarnahýði og kjarnakorn, og ekki hafa lieldur með
vissu sézt í því litþræðir meðan á skiptingu stendur.
Safabólur.
Venjulegar safabólur fylltar vökva eru mjög sjaldgæfar í frum-