Náttúrufræðingurinn - 1958, Blaðsíða 32
22
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
hai'i haft óbreytta fjarlægð frá heimskautinu síðan elztu jökul-
kynja lög mynduðust hér (6). í öðru lagi sýna segulmælingar í öðrum
löndum, t. d. Ástralíu og Frakklandi, að löndin hafa liaft óbreytta
afstöðu til heimskauta síðan á miosen tíma (9). Þetta út af fyrir sig
styrkir það, að hér hefðu getað myndazt jöklar á rniosen. Það sem
á móti mælir eru liins vegar hin miklu almennu hlýindi veðrátt-
unum á þeim tíma.
Nú er þess að gæta, að meðalárshiti á 65. breiddargráðu er nú
um —5° C. Árshitinn hér á landi er um 10° ofan við það rneðal-
lag og stafar það af áhrifum frá Golfstraumnum. Ef almennur hiti
á jörðinni á síðari liluta míósen hefði verið um 5° hærri en nú
(skv. sumum áætlunum var hann 3—5° hærri en nú), en Golf-
straumsins hefði eigi gætt hér á landi mundi árshitinn hér liafa
verið kringum 0° C og á skeiðum með röku loftslagi hefði þá
mjög eðlilega getað komið til jöklamyndana. Þannig gætu hinar
fornu jökulmyndanir verið eðlileg afleiðing af vöntun Golfstraums-
áhrifa hér við land, en það virðist ekki þurfa að rekast á þá stað-
reynd, að í Vestur-Evrópu var enn hlýtt á míósen; þar gat Golf-
straumsins gætt, þótt hann næði ekki hingað.
Sýnilega dregur þessi skýring þann dilk á eftir sér, að gera yrði
ráð fyrir miklum breytingum á hafsbotninum suður frá íslandi
síðan á míósen tíma og get ég ekki séð neitt óeðlilegt við það.
Að minni hyggju felur skýringin ekki neitt í sér sem væri jarð-
fræðilega séð óeðlilegt, en auðvitað verða fleiri rannsóknir að
koma til áður en hún yrði viðurkennd.
HEIMILDARIT - REFERENCES
1. /. Hospers, Nederl. Akad. Proceed, 15, 56, No. 5, 1953; 57, No. 1, 1954.
2. A. Roche, C.R. 256, 1953, p. 107.
3. Trausli Einarsson and Þorbjörn Sigurgeirsson, Natnre, 175, 1955, p. 892.
4. Trausli Einarsson, Neues Jb. Geol. Palaontol., Mh. 1957, 4, p. 159—175.
5. „ „ Phil. Mag. Suppl. Vol. 6, No. 22, p. 232-239, 1957.
6. Þorbjörn Sigurgeirsson, Phil. Mag. Suppl. Vol. 6, No. 22, p. 240—246.
7. T. Nagata et al., Journ, Geomagn. Geoelectr. Vol. IX, No. 1, p. 23—41, 1957.
8. M. Schwarzbach und H. D. Pflug, Neues Jb. Geol. Palaontol. Abh. 104
p. 279-298, 1957.
9. E. Irving, Phil. Mag. Suppl. Vol. 6, No. 22, p. 194—218.