Náttúrufræðingurinn - 1958, Blaðsíða 51
BLÁGRÆNÞÖRUNGAR
41
7. mynd. Nostoc planctonicum. a gróðurkúlur í náttúrlegri stærð. b ein kúla
stækkuð. c og d einstakar keðjur meira stækkaðar, með gulfrumum. (Poretzky
og Tschernow).
um blágrænþörunga. Má heita, að þær finnist eingöngu í hárfrum-
um, en af slíkum frumum eru hár þau, sem sérkennandi eru fyrir
þörunga af ættkvíslinni Rivularia. Safabólur hárfrumanna fara
stækkandi með aldrinum og fylla að lokum alveg út í frumuna, svo
að hún deyr. Safabólur, sem myndast í öðrum frumum blágræn-
þörunga, hverfa heldur ekki aftur, og ber vafalaust að lita á þær
sem sjúklegt fyrirbrigði eða ellimörk. Undantekning eru þó hol-
rúm þau í fryminu, sem myndast samfara frumuskiptingu nokk-
urra tegunda (keritomie), en þau hverfa jafnan aftur, t. d. við bætt
n ær i n garskil yrði.
Loftfylltar safabólur, finnast í mörgum blágrænþörungum. Sér-