Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1958, Page 36

Náttúrufræðingurinn - 1958, Page 36
26 NÁTTÚ RUFRÆÐINGU Ri N N inn. Er pálmatré mjög frábrugðið okkar norrænu, fjölgreinóttu og bolmiklu trjám í öllu útliti. Bolur pálmatrés er þakinn blaðföx- um og leifum blaða og blaðstilka. Eru pálmabolir því mjög ósléttir. Blöð margra pálma eru risavaxin, jafnvel 4—6 m á lengd og eru annaðhvort fjaðurskipt eða handklofin. Geta smáblöðin eða flipar eins blaðs skipt hundruðum. Pálmabolir eru fremur viðarmjúkir og líkjast talsvert risavöxnum puntstráum, án knjáa. Eiginlegan vaxtarvef vantar undir börkinn og eru pálmarnir þess vegna alla ævi grannir og spengilegir, en gildna ekki stöðugt með aldrinum eins og okkar tré. Pálmakrónurnar stækka lieldur ekki líkt og lauf- krónur nori'ænna trjáa, því að gömul blöð smá falla í stað hinna nýju, sem upp vaxa. Pálmarnir bera stórar blómskipanir, jafnvel 3—4 m langar, með tjölda blóma. Hanga blómskúfarnir venjulega niður úr laufblaðakrónunni. Blómin eru venjulega grængul, sjaldn- ar daufrauð, og frævast af vindinum. Aldinin hnetur, ber eða stein- aldin. Kókoslinetur enx í raun og veru steinaldin; döðlurnar eru einfræja ber. Kókospálminn (Cocos ?iucifera) er einhver hinn litbreidd- asti og frægasti pálmi veraldar. Hann getur orðið 20—25 m hár, en alla ævi svo grannvaxinn að bolurinn verður ekki nema 25—30 cm í þvermál. Oft hallast kókospálmarnir fyrir vindi. í toppinn ber hinn granni stofn mjög stóran skúf 25—35 gríðarstórra blaða, sem geta orðið allt að 6 m á lengd og vegið allt að 10 kg hvert. Ætla mætti að hinn granni pálmastofn mundi sveiflast fram og aftur, jafnvel í hægri golu, en svo er ekki. í allsnörpum vindi blakta blöðin mjög, en stofninn hrærist lítið. Vaxtarstaður hinna ungu blaða og blómskipana situr í toppi pálmans og er vel varinn af hinum sterku blaðfótum. Þessi ungi, meyri vaxtarvefur kallast „pálmakál“ og þykir góður til matar. Þyngdin getur verið nokkur kg á þessu pálmakáli og það hefur hnetukjamabragð. Meindýr eitt, nashyrningsbjalla, sækir í pálmakál og getur drepið pálmann. Trúðu menn fyrrum að illur andi hefði flogið yfir tréð — með nýju tungli! Kókospálminn liefur voldugar rætur, sem geta vaxið allt að 5 m í jörð niður og náð álíka langt út frá trénu. Landsbúar eru mjög fimir að klifra upp pálmana, enda eru stofnamir ósléttir og stundum einnig gerð fótfestu för í þá. Kókospálminn ber þús- undir smáiTa blóma í stórum blómskipunum. Er jörðin þakin

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.