Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1958, Page 40

Náttúrufræðingurinn - 1958, Page 40
30 NÁT'l'Ú RU FRÆDINGURI N N lega „mjúkar“ döðlur. Döðlukjarnar eru notaðir til fóðurs handa úlföldum og einnig eru þeir brenndir í kaffibæti. Til er ógrynni döðluafbrigða í vinjunum, en til útflutnings eru notuð 20—30 afbrigði. Bæði í Egyptalandi og Suðvestur-Asíu hafa döðlupálmar verið ræktaðir í fjögur til fimm þúsund ár. Forn-Egyptar töldu döðlu- pálmann ímynd frjóseminnar, Karthago-menn greyptu mynd hans á peninga sína, Gyðingar notuðu blöðin við hátíðahöld (pálma- greinar), með Grikkjum og Rómverjum var pálminn sigurtákn og kristin kirkja notar pálmablöð bæði sem friðar- og píslarvættis- tákn. — Sterkt vín er framleitt úr gerjuðum döðlum, sætur vökvi er unninn úr stofninum og gert úr döðluvín. Döðlupálmatimbur þykir góður, harður smíðaviður. Blaðstilktrefjarnar eru notaðar í kaðla. Enn fleiri not eru af pálma þssum. Döðlupálminn þrífst bezt í þurru, heitu loftslagi, en ræturnar þurfa þó mikinn raka. í rökti loftslagi sækja sveppir á hann. Döðlupálmi getur vaxið í Grikklandi og á Ítalíu, en ber þar sjaldan ávöxt. Márar fluttu hann til Suðui'-Spánar og þar ber hann aldin. Mest döðlurækt er í írak, Egyptalandi, Persíu, Arabíu, í Norður-Afríkulöndunum — og í seinni tíð í Kaliforníu. Sagópálmarnir (Metroxylon). Þeir vaxa viltir á Sundaeyj- um og Mólúkkaeyjum og eru einnig ræktaðir mikið á þeim slóðum, t. d. á Súmatra, Borneó og Java. Tegundin M. Rumþhii verður 8—12 m á hæð og ber 4—6 m löng fjaðrablöð, allmjög sett þyrnum. Sagópálminn ber blóm og aldin 20—30 ára gamall og deyr síðan, en nýir sprotar vaxa upp af rótunum. Mergur sagópálmanna er mjög auðugur af mjölvi fyrir blómgunina. Menn fella pálmann áður en hann blómgast, skera síðan stofninn í metralanga búta, afbirkja þá og hirða merginn. Fást 300—400 kg af merg úr vænum stofni Ur hreinsuðum mergnum fæst sagómjölvi eða „Sagó-Arrowrót“ sem sagógrjónin eru unnin úr. En sagógrjón eru einnig unnin úr kartöflum, kassavamjöli, merg sykurpálmans o. fl. plöntum. Pálmasykur er unninn úr ýmsum pálmum, einkum sykur- pálma (Arenga saccharifera), palmyrpálma (Borassus), vín- pálma (Raphia vinifera) o. fl., frá ýmsum hitabeltislöndum. Syk- urinn er unninn úr kvenblómaskipun sykurpálmans. Er blómskip- unin skorin af, en sykursafinn, sem ætlaður var blómunum til nær- ingar, vætlar úr sárinu, oft 3—4 1 á dag mánuðum saman, og er

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.