Náttúrufræðingurinn - 1949, Side 12
4
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
náttúrurannsóknir hafa átt við kröpp kjör að búa. Hann eggjar ís-
lenzka menntamenn til nýrra átaka og ritar: . . megum við aldrei
gleyma, og það verður aldrei fullbrýnt fyrir íslenzkum stjórnarvöld-
um, að það er einn höfuðþáttur í tilverurétti íslenzkrar menningar
og um leið íslenzks sjálfstæðis, að við liöfum sjálfir meginhluta rann-
sóknanna á náttúru landsins í okkar höndum. Við verðum að gera
okkur fyllilega ljóst, að það er hégómi að hafa dýr sendiráð út um
lönd, til þess að sýna sjálfstæði Islands, ef við afsönnum samtímis rétt
okkar til sjálfstæð's með því að láta hÖfuðritin um- náttúru landsins
birtast í öðrum löndum undir stjórn erlendra manna."
Hann sá þá ósk sína rauast, að stjórnarvöldin sýndu náttúruvís-
indunum meiri rausn en tíðkaðist þá, er hann ritaði þetta. Honum
var sjálfum veitt forstaða grasadeildar Náttúrugripasafnsins unr ára-
mót 1948. Um langt skeið hafði hann borið fyrir brjósti framtíð
þessa salns, eins og sést af þátttöku hans í Grænlandsleiðangrinum.
Skýrast kom það í ljós, þegar Grasadeildinni barst hin höfðinglega
gjöf próf. Skottsbergs, um 5000 tegundir norrænna jurta. Það var
mest fyrir hans frumkvæði, að safninu hlotnaðist þessi nytsamlega
gjöf. Það var hrifning í svip hans, er hann fyrir skömmu sýndi gest-
um feng þennan, og þá grunaði engan, að ævi hans væri senn öll.
Það var orðið augljóst, að Guðni var gæddur beztu eiginleikum
safnvarðar: snyrtímennsku og reglusemi. En meginstarfsemi hans
hafði fram að þessu beinzt að öðrum viðfangsefnum grasafræðinn-
ar, sérstaklega erfðafræði, sent hann hafði unnið að árum saman.
Þar voru lionum aðrir eiginleikar gefnir, sem rit lians bera fagran
vott um, en það voru glöggskyggni og frábær þolinmæði.
Fyrsta vísindalega rit hans birtist árið 1941 og heitir „Om Aphan-
es arvensis L. og A. microcarpa (Bo'ss. et Reut.) Rothm. og deres
IJdbredelse i Danmark". Ritgerð þessi, um tégundir skyldar maríu-
stakki, byggist á rannsóknum, er hann gerði á ferðalögum um Dan-
mörku sumarið 1939, en hann kemur hér líka inn á mjög erfiðar
rannsóknir á vefjum og ákveður kromósómfjölda þeirra, sem hafði
verið torleyst þraut, vegna smæðar kromósómanna.
Magistersprófi í grasafræði lauk Guðrii vorið 1943 og skilaði þá
til prófs viðamikilli ritgerð um tegundahugtakið, og hvernig grasa-
fræð ngar liafa skilið það í einstökum tilfellum. Þessi ritgerð hefur
ekki birzt á prenti.
Þegar hér var komið, var hann byrjaður á samstarli við dr. Thor-