Náttúrufræðingurinn - 1949, Page 33
GOS GEYSIS í HAUKADAL
25
Þorbjörn mun hér á eftir gera nánari grein fyrir hitamælingunum,
en ég vil bæta hér við nokkrum almennum orðum.
f»að er kunnugt, að þegar venjulegt vatn, sem jafnan er í nokkuð
af lofti, er liitað, fer að hvína í því, þegar snarphita er náð. Þá er
loftið að losna úr því.
Loks fer vatnið að sjóða við suðumarkið, sem er 100°C við eina
loftþyngd.
Við suðuna heldur loftið enn áfram að losna, og þar kemur, að
lítið sem ekkert er orðið eft'r af því í vatninu. En þá kemur nýtt
atriði til sögunnar: Vatnið tregðast við að sjóða við suðumarkshita.
Það hitnar ein 2—4 stig upp fyrir suðumark, og þá kernur suðan upp,
snögglega og eins og sprenging.
Loftlaust, hreint vatn hefur, með öðrum orðum, rnikla tilhneig-
ingu til að yfirhitna og sjóða rykkjótt. Þessi tilhneiging er svo sterk,
að á tilraunastofum verður jafnan að gera sérstakar ráðstafanir, setja
t. d. glerbrot í vatnið, ef sporna á við rykkjóttri suðu.
Ég gerði eitt sinn nokkrar tilraunir með yfirhitun á vatni í venju-
legu tilraunaglasi. Niðurstaðan varð sú, að þegar búið var að sjóða
loftið burt, var auðvelt að.hita vatnið upp í 104°C, áður en suðan
kom upp.
Hærra komst ég ekki, en vitað er, að með sérstökum varúðarráð-
stöfunum er liægt að(komast upp í 110—120°C.
En ef ég setti vott af sápu í vatnið, varð breyting á. Þá gat ég
auðveldlega liitað upp í 112°C, áður en suðan kont upp. En það
var þá ekki nein venjuleg suða, heldur sprenging, sem þeytti inni-
haldi glassins upp á loftið í tilraunastofunni.
Meðan loft er í vatni tekst ekki að yfirhita jrað svo að nokkru
nenii. Yfirhitunin í Geysi ætti því að sýna allgreinilega, live lítið
loft er í því vatni og hve iitla þýðingu loftið hlýtur að hafa við gos n.
Hins vegar gefa tilraunirnar bendingu urn þýðingu sápunnar. Hún
er í því fólgin, að sápumengað vatn yfirhitnar auðveldlegar og miklu
meir en hreint vatn.
Þegar hitinn niðri í Geysi er kominn að suðumarki, tekur maður
eftir J)\ í, að litlar suðubólur stíga upp. (Ég hef árangurslaust reynt
að safna lofti úr Jjessum bólum. Þær eru hrein vatnsgufa.)
Þær sýna, að róleg suða á sér stað og hún veldur engu raski í
hvernum, kemur ekki gosi af stað. En því næst getnr svo farið, að
bólur hætti að stíga. Róleg suða hefur fallið niður, og nú má búast
við yfirhitun.