Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1949, Síða 33

Náttúrufræðingurinn - 1949, Síða 33
GOS GEYSIS í HAUKADAL 25 Þorbjörn mun hér á eftir gera nánari grein fyrir hitamælingunum, en ég vil bæta hér við nokkrum almennum orðum. f»að er kunnugt, að þegar venjulegt vatn, sem jafnan er í nokkuð af lofti, er liitað, fer að hvína í því, þegar snarphita er náð. Þá er loftið að losna úr því. Loks fer vatnið að sjóða við suðumarkið, sem er 100°C við eina loftþyngd. Við suðuna heldur loftið enn áfram að losna, og þar kemur, að lítið sem ekkert er orðið eft'r af því í vatninu. En þá kemur nýtt atriði til sögunnar: Vatnið tregðast við að sjóða við suðumarkshita. Það hitnar ein 2—4 stig upp fyrir suðumark, og þá kernur suðan upp, snögglega og eins og sprenging. Loftlaust, hreint vatn hefur, með öðrum orðum, rnikla tilhneig- ingu til að yfirhitna og sjóða rykkjótt. Þessi tilhneiging er svo sterk, að á tilraunastofum verður jafnan að gera sérstakar ráðstafanir, setja t. d. glerbrot í vatnið, ef sporna á við rykkjóttri suðu. Ég gerði eitt sinn nokkrar tilraunir með yfirhitun á vatni í venju- legu tilraunaglasi. Niðurstaðan varð sú, að þegar búið var að sjóða loftið burt, var auðvelt að.hita vatnið upp í 104°C, áður en suðan kom upp. Hærra komst ég ekki, en vitað er, að með sérstökum varúðarráð- stöfunum er liægt að(komast upp í 110—120°C. En ef ég setti vott af sápu í vatnið, varð breyting á. Þá gat ég auðveldlega liitað upp í 112°C, áður en suðan kont upp. En það var þá ekki nein venjuleg suða, heldur sprenging, sem þeytti inni- haldi glassins upp á loftið í tilraunastofunni. Meðan loft er í vatni tekst ekki að yfirhita jrað svo að nokkru nenii. Yfirhitunin í Geysi ætti því að sýna allgreinilega, live lítið loft er í því vatni og hve iitla þýðingu loftið hlýtur að hafa við gos n. Hins vegar gefa tilraunirnar bendingu urn þýðingu sápunnar. Hún er í því fólgin, að sápumengað vatn yfirhitnar auðveldlegar og miklu meir en hreint vatn. Þegar hitinn niðri í Geysi er kominn að suðumarki, tekur maður eftir J)\ í, að litlar suðubólur stíga upp. (Ég hef árangurslaust reynt að safna lofti úr Jjessum bólum. Þær eru hrein vatnsgufa.) Þær sýna, að róleg suða á sér stað og hún veldur engu raski í hvernum, kemur ekki gosi af stað. En því næst getnr svo farið, að bólur hætti að stíga. Róleg suða hefur fallið niður, og nú má búast við yfirhitun.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.