Náttúrufræðingurinn - 1949, Side 44
36
N ÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN
2. mynd. Snið mcelt af T. F. W. Barth
utan i shál Geysis að norðvestan. — Sltýr-
itigar (teknar eftir Barth): Hœð sniðsins
er 3.6 m. Lögin 1, 2, 4, 6, 7, 9, 11, 13, 13,
17, 19 og 24 era kísilhrúðurlög. t lagi 2 er
mikið af birkilaufum. Lögin 8, 12, 1S og
20 eru leirblönduð kisillög. Lögin 3 og 21
cru gulbrún leirlög. 10, 14 og 16 cru lög
úr mjúhum, hvitum leir, 22 bláleitt leir-
lag og 23 rautt leirlag. Lag 3, sem er 27
nn þykkt, samanstendur aðallega af gul-
brúnum vikri. T.ögunum hallar um 5° inn
undir skálina.
í ágúst 1937 dvaldist norski jarðfræðingurinn T. F. W. Barth
nokkra daga við Geysi og gerði þar ýmsar athuganir. M. a. mældi
hann snið það, sem lækur hefur grafið utan í Geysiskeiluna
norðvestanverða (sbr. Ijósmyndina). Ég birti hér sem 2. mynd snið
Barths, og skýringarnar við sniðið eru einnig frá Barth. í þessu sniði
skiptast á leirkennd lög og lög úr n;er hreinum kísli. Barth skýrir