Náttúrufræðingurinn - 1949, Page 45
UM ALDUR GEYSIS
37
þessa lagskiptin«u svo, að Geysir hafi verið súr og basískur hver á
víxl, því að leirlögin muni liafa myndazt fyrir áhrif súrs vatns. Þar
eð ekki er vitað uin neina slíka breytingu á hvernum síðustu þrjár
aldirnar, bendir þessi lagskipting að áliti Barths til þess, að hverinn
sé mjög gamall.
Lagið nr. 3 í sniði Barths er 27 cm þykkt og samanstendur að
verulegu leyti af fíngerðum, ljósum vikri. Barth telur ekki plíklegt,
að þetta öskulag hal’i myndazt í Heklugosi 1294, sem liafi verið
mikið vikurgos, en álítur, að lagið geti þó verið mun eldra.
Ofan á vikurlaginu í Geysissniðinu er lag (nr. 2) með gnægð birki-
laufa. Bartli telur, að þegar eftir fyrstu aldir íslandsbyggðar muni
skógur hafa verið eyddur í næsta nágrenni Geysis og sé því þetta
birkilaufalag a. m. k. 500 ára gamalt.
Niðurstöður Bartlis verða því, að aldur Geysis í Haukadal skipti
þúsundum ára, en Geysir liafi löngum verið óvirkur sem basískur
goshver.
Athuganir og niðurstöður Barths eru athyglisverðar, en rök hans
eru þé) ekki fullkomlega sannfærandi, og m'. a. eru ályktanir lians
um aldur vikurlagsins nokkuð út í bláinn.
Þann 2. júlí síðastliðið sumar dvaldist ég nokkurn hluta dags við
Geysi sem leiðsögumaður sænsku land- og jarðfræðinganna, er hér
vo'ru á ferð. Á meðan v.ð vorum að bíða eftir gösi, neytti ég tækifær-
isins til að grafa snið í jaðar þess moldarjarðvegslags, sem þekur
hlíðina vestur af Geysissvæðinu og nær út á kísilhrúðursvæðið, um
100 m suðvestur af Geysi. Þetta jarðvegssnið er sýnt á 3. mynd. Á
sömu mynd er einnig sýnt jarðvegssnið, sem ég mældi rétt hjá bæjar-
rústunum að Skallakoti í Þjórsárdal sumarið 1939, og auk þess tvö
snið, sem ég mældi í sumar á ferðalagi mínu með Svíunum. Annað
er mælt í jarðvegstorfu skammt norðaustur af Sandvatni, en hitt
suðaustan undir Fagradalsljalli, nærri Hagavatni. f Skallakotssnið-
inu var hægt að ákvarða örugglega aldur yngstu öskulaganna, og með
frjógreiningu var hægt að sanna, að lagið Vlla, hið efsta í liinni áuð-
þekkjanlegu öskulagaröð Vlla—-Vlld, sem finna má í jarðvegssniðum
víðast um ofanverðar Árness- og Rangárvallasýslur, liafði myndazt
nokkru fyrir landnámsöld.
Ef við berum saman sniðin frá Skallakoti og Geysi á 3. mynd, er
augljóst, að öskulögin III—V, Vlla og Vllb er einnig að finna í
Geysissniðinu. Ljósa líparítlagið VI, sem við Hákon Bjarnason telj-
um vera frá Heklugosinu árið 1300, var ekki að finna í þessu Geysis-