Náttúrufræðingurinn - 1954, Síða 8
150
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
andi frumu, þær báðar síðan tvær aðrar o. s. frv. Tíglaveiki-vírus,
sem kemur á blað tóbaksplöntu, orsakar þá það, að eitthvert ákveðið
efni í frumum blaðsins breytist á skömmum tíma í tíglaveiki-vírus.
Eins og áður hefur verið fram tekið, er það sameiginlegt með öll-
um þeim vírusum, sem við þekkjum, að þeir auka aðeins kyn sitt í
lifandi frumum, jurta eða dýra. Kemur þetta fram sem meira eða
minna hættulegur sjúkdómur á hlutaðeigandi jurt eða dýri. Nokkra
sérstöðu hafa þeir vírusar, sem lifa í gerlum, því að þeir leysa jafnan
gerilfrumuna upp í skjótri svipan. Er þessi vírusaflokkur því oftast
nefndur gerilœtur eða ,,Bacteriophagae“. Það er einungis þessi skað-
legu áhrif vírusanna á frumurnar, og sjúkdómarnir, sem þeir orsaka,
er orðið hafa þess valdandi, að það hafa yfirleitt fundizt nokkrir vír-
usar. Ennþá þekkjum við heldur ekki neina aðra vírusa en þá, sem
eru snýklar, en þar með er auðvitað ekki útilokað, að eitthvað sjálf-
stæðari virusar séu til.
Ræklun vírusa.
Þeir vírusar, sem nú eru þekktir, verða ekki ræktaðir nema í lifandi
frumum, og gerir það allar rannsóknir á þeim miklu erfiðari. Gerla
er, sem kunnugt er, jafnan hægt að rækta í blöndum af lífrænum
efnum í tilraunaglösum, og eru blöndur þessar dauðhreinsaðar áður,
svo að þar er ekkert lifandi fyrir. Til þess að rækta vírusa, þarf aftur
á móti að hafa lifandi jurta- eða dýravef. Slíka vefi má rækta í dauð-
hreinsaðri blöndu lífrænna efna. Einnig er mjög algengt að nota ung-
uð egg. Eru venjulega notuð hænuegg og þau látin unga hæfilega
mikið, en þá er virusnum sáð i þau, og vex hann þar í vefjum fóst-
ursins og fylgjunnar. Misjafnlega gengur þó slík ræktun, eftir því
hvaða virustegund á í hlut. Til dæmis hefur allt fram til þessa ekki
verið hægt að rækta mænuveiki-virus, nema í mænu eða heila lifandi
apa, með öðrum orðum, það hefur orðið að sýkja heilan apa, í stað
þess að sá í eitt tilraunaglas eða i egg. Alveg nýlega hefur þó tek-
izt að rækta vírustegund þessa í lifandi vef í tilraunaglasi.
Yirusunum er jafnan skipað í þrjá höfuðflokka: 1) Vírusa, sem lifa
í gerlum, Phaginea, 2) Vírusa, sem lifa í jurtum, Phytophaginea,
3) Vírusa, sem lifa í dýrum, Zoophaginea. 1 hverjum flokki eru
þekktar fjölda margar tegundir, sem hlotið hafa sín vísindalegu heiti
á sama hátt og tegundir jurta og dýra. Af nokkrum algengustu teg-
undunum má t. d. nefna: