Náttúrufræðingurinn - 1954, Qupperneq 20
162
NÁTTtJRUFRÆÐINGURINN
koti, eru sama eðlis og í hinu erlenda sýkta korni. Hafa þeir verið
kallaðir korndrjólar (Secale cornutum)1), en þeim veldur myglu-
sveppur nokkur, Claviseps purpurea.
Sveppur þessi sníkir á blómum margra grastegunda, en er einna
algengastur og veldur mestu tjóni
á rúgi. Á byggi finnst hann stöku
sinnum, en sjaldan á hveiti. Hér
á landi telur Ingólfur Davíðsson
(1938 og 1951) hann ekki óalgeng-
an á háliðagrasi, túnvingli, vallar-
sveifgrasi og jafnvel byggi, og auk
þess fann ég hann í melöxum á
Geitasandi á Rangárvöllum haust-
ið 1951 og að Skarði á Landi nri
haustið 1954. Nokkrir mismunandi
stofnar eru til af sveppi þessum,
og eru sumir einskorðaðir við
sníkjur á ákveðnum grastegundum.
Auðveldast er að þekkja sveppinn
á hvíldarstigi sínu, á drjólum þeim,
er hann myndar í kornaxinu. Eru
þeir ílangir, bjúglaga og langrönd-
óttir, harðir mjög og svartir eða
dökkfjólubláir að lit, en að innan
gráleitir. Á melnum geta þeir orðið
20—30 mm á lengd og 4—5 mm
á breidd og standa langt út úr ax-
inu. Eru stundum mörg hlóm sýkt
á sama axi, og eru drjólarnir þá
oft misjafnir að stærð. Drjólar þess-
ir ná þroska síðast í ágúst og byrj-
un september eða á svipuðum tíma
og kornið sjálft. Falla þeir með því
úr axinu og geymast í jörðu yfir
veturinn. Við hirðingu bygg- og rúgkornsins slaj.ðast drjólarnir óhjá-
kvæmilega með hinu heilbrigða korni, og verður þá að hreinsa þá úr,
Korndrjólasveppurinn (Clauiceps pur-
purea). a. Rúgax með korndrjólum.
b. Rúgfræva með myglugrein, er ber
knappskotsgróin, nokkuð stækkuð. c.
Hálfvaxinn korndrjóli, nokkuð stækk-
aður. /. Gróhirzla með grósekkjum,
Langskurður af gróbera, nokkuð stækk-
uðum. f. Gróhirzla með grósekkjum,
mikil stækkun. g. Grósekkir með þráð-
laga gróum, enn meiri stækkun. Eftir
E. Rostrup.
1) Á ensku og frönsku heita korndrjólamir ergot, eða argot á fom-frönsku, er
þýðir spori, liklega dregið af sporalögun drjólans. Á dönsku eru þeir kallaðir moder-
korn, meldröje eða brandkorn (kornbrand), á norsku mjölauke, matauke eða tnjöl-