Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1954, Qupperneq 30

Náttúrufræðingurinn - 1954, Qupperneq 30
172 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN nákvæmni, þótt hann, að vísu, geri sér ekki grein fyrir því, að um svepp er að ræða. Er athyglisverðast, að hann veit, að melskíturinn er mjög óhollur til átu, og eitrun hans geti valdið „innvortis mein- iæti“. Og hann aðvarar fólk um að hreinsa kornið tæpum 100 árum áður en reglugerðin um kornhreinsun er sett í Noregi. En Sæmundur Hólm minnist ekki á neinn sérstakan, sem hafi sýkzt af neyzlu hins skemmda korns. Sveinn Pálsson læknir (1945), sem ferðaðist um Suðurlandsundir- lendið eftir Skaftáreldana, lýsir einnig meldrjólum og eitrun þeirra, þó ekki geri hann það eins nákvæmlega og Sæmundur Hólm. Notar hann þar orðið ,vmelskít“ eða „melaskít“ ýmist um sjúkdóminn á mönnum og ofvöxtinn á melnum og jafnvel yfir sveppinn sjálfan eftir þvi, sem Þorvaldur Thoroddsen (1920) hefur eftir honum, i sambandi við heilbrigði melsins á Möðrudalsöræfum.1) Sveinn telur hins vegar, að eitrunin sé útbreidd. „Undarlegt er þó,“ skrifar hann, „að menn hafa síðan [eftir eldgosin 1783], einkum í Landbroti, þjáðst mjög af hinum svonefnda melskít. Svo er mál með vexti, að kjarninn eða fræið á melnum breytist í nokkurs konar dökkbrúnt, hornkennt og allt að því tveggja þumlunga langt æxli, sem þykir valda iðrakvefi, niðurgangi og öðrum kvillum, er það kemur í mat- inn.“ Sveinn minnist enn á hið sama, er hann gagnrýnir rit Magn- úsar Stephensens (1785) um Skaftárelda, þótt Magnús virðist hvergi geta meldrjóla. Segir Sveinn, að menn telji melinn sýkjast fyrst í Skaftáreldunum, sem ekki var óeðlileg skoðun á þeim tíma, þegar allt virtist vera óheilnæmt í jörðu og á, pestarkjötið, jarðargróðurinn allur, drykkjarvatnið og jafnvel loftið sjálft. Vafasöm er þessi stað- hæfing þó, og öllu sennilega, að Skaftfellingar hafi þá fyrst neyðzt til þess að leggja sér korndrjóla til munns í hallærisárunum eftir gosin, en slíkt hafi verið forðazt áður, enda er lýsing Sæmundar Hólm á melskítnum einnig sönnun þess, að meldrjólarnir voru þekkt- ir fyrir Skaftáreldana. Enda þótt Sveinn telji sjúkdóminn algengan, minnist hann ekki frekar en Sæmundur á nökkurn sérstakan, sem hafi sýkzt af neyzlu meldrjólanna, og lýsing Sveins á iðrakvefi, nið- urgangi og vindverkjum sem afleiðingum melskítsneyzlu, er ekki sér- staklega einkennandi fyrir korndrjólaeitrun. — Gat eitrun meldrjól- anna þá aðeins valdið magakrömpum í verstu tilfellum, en ekki drepi 1) Þessn tilvitnun hef ég þó ekki getað fundið, og er liklegt, nð Þorvnldur hnfi þetta úr hréfi Magnúsar lil Tordals aintmanns.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.