Náttúrufræðingurinn - 1954, Síða 44
Sigurður Blöndal:
Tilraun til greiningar á birki
í Hallormsstaðarskógi
Inngangur.
Grein þessi fjallar um tilraun, er ég gerði til þess að reyna að kom-
ast að því, hvaða birkitegundir kynnu að finnast í Hallormsstaðar-
skógi. Hún var upphaflega skrifuð sem prófritgerð i skógarbótaník
við skógræktardeild Landbúnaðarháskóla Noregs að Ási. Ástæðan til
þess, að ég freistast til að birta hana nú er sú, að Steindór Steindórs-
son, menntaskólakennari, frá Hlöðum, taldi rétt, að hún birtist ís-
lenzkum áhugamönnum um grasafræði, þar eð íslenzka björkin hefur
fáum orðið að rannsóknarefni og því lítið um hana ritað ó íslenzku.
Eins og greinin birtist hér, er hún að mestu orðrétt þýðing á próf-
ritgerð minni. Þó er sleppt stuttum kafla, þar sem gefin var staðar-
lýsing á Ilallormsstað með landfræðilegri legu, jarðfræði staðarins
og veðurfari.
Sýnishornum, sem notuð voru til nafngreiningar. safnaði ég í Hall-
ormsstaðarskógi í öndverðum ágústmánuði árið 1950. Hvernig söfn-
un sýnishomanna skyldi hagað, ákvað ég í samráði við Tollef Ruden,
forstöðumann kynbótadeildar norsku skógræktartilraunanna, en hjá
honum var ég aðstoðarmaður í nokkra mánuði þetta ár. Ola Borset,
tilraunastjóri á Ási, einn helzti sérfræðingur Norðmanna um lauftré,
gaf mér ýmis góð ráð um það, hvernig vinna skyldi úr sýnishorn-
unum. Og loks þá ég góð ráð hjá Finn Roll-Hansen, dósenti í skógar-
bótaník við Landbúnaðarháskólann.
I. Islenzka björkin.
Fáir hafa til þessa gefið sig að nokkru ráði að athugunum á íslenzku
björkinni. f „Flóru fslands“ eftir Stefán Stefánsson, 3. útg. (1948),
segir í þessu sambandb „Annars er íslenzka björkin mjög breytileg
og þyrfti gagngerðrar rannsóknar".