Náttúrufræðingurinn - 1956, Blaðsíða 73
+— ----------------------------— --------—----*
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS:
AÐALFUNDUR
Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélag íslands verður
haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykjavík, laugar-
daginn 9. júní 1956 og hefst kl. 1,30 e. h.
D A G S K R Á :
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum á
liðnu starfsári, og frá starfstilhöguninni á yfirstandandi
ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurðar
endurskoðaða rekstursreikninga til 31. desember 1955 og
efnahagsreikning með athugasemdum endurskoðenda,
svörum stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá end-
urskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiptingu
ársarðsins.
3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra,
sem úr ganga samkvæmt samþykktum félagsins.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og eins
varaendurskoðanda.
5. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins.
6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp
kunna að verða borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og
umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík,
dagana 5.-7. júni næstkomandi. Menn geta fengið eyðublöð
fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félags-
ins í Reykjavík. Óskað er eftir að ný umboð og afturkallanir
eldri umboða séu komin skrifstofu félagsins í hendur til skrá-
setningar, ef unnt er 10 dögum fyrir fundinn, þ. e. eiga síðar
en 30. maí 1956.
Reykjavík, 28. desember 1955.
STJÓRNIN.
+■