Náttúrufræðingurinn - 1956, Blaðsíða 49
KON OG KJARNORKA
43
ómsprengju. Þekktar eru líka stökkbreytingar, sem eru tegundinni
sjálfri til einskis gagns eða eru henni jafnvel lítið eitt bagalegar, en
eru gagnlegar öðrum, sem tegundina nytja, t. d. manninum. Þann-
ig hefur ýmsum nytjajurtum verið stökkbreytt til bóta með geislun.
Á þennan hátt hefur t. d. verið gert afbrigði af byggi, sem hefur
upprétt öx í stað drjúpandi. Er þessi stökkbreyting enginn ávinn-
ingur fyrir byggafbrigðið, nema síður sé, en aftur á móti til hag-
ræðis fyrir bóndann, því að auðveldara er að slá Jiið upprétta bygg.
Með geislun liefur og korntegundum verið stökklireytt þannig, að
þær verjast betur ryðsveppum en eldri tegundir (4).
Að síðustu lilýtur að vakna sti mikilvæga spurning, hver áhrif vax-
andi tíðleiki stökkbreytinga liafi á þróun tegundanna. Það er al-
kunn staðreynd, að þróun tegundar getur því aðeins átt sér stað, að
nýir eiginleikar komi til sögunnar, en það getur aðeins orðið við
stökkbreytingar. Nú Jiefur það sýnt sig,að ein af hverjum eitt til fimm
liundruð stökkbreytingum er til ljóta, án tillits til þess, livort stökk-
breytingin var sjálfvakin eða af völdum geislunar. Aukinn tíð-
leiki stökkbreytinga mundi þannig geta leitt af sér meiri liraða á
þróuninni. Með auknum verkunum röntgen- og kjarnageisla á
mannkynið mætti því sennilega flýta þróun þess. En þessi lnaða-
auki mundi verða dýrkeyptur, því að á móti hverjum einum, sem
miðaði áfram, mundu eitt til fimm hundruð færast þrepi neðar og
sumir þeirra vafalaust falla í valinn eittlivað fyrr en ella. Ef til vill
verður það Jnáðlega eitt af verkefnum Sameinuðu þjóðanna að
ákveða Jiraða þróunarinnar.
HEIMILDARIT:
1. Andrews, H. L. 1955. Radioactive Fallout from Bomb Clouds. Science
122: 453-456.
2. Cronkite, E. P., Bond, V. P., Chapman, W. H., Lee, li. H. 1955. Biological
Effect of Atomic Bomb Gamma Radiation. Sciene 122: 148—150.
3. Keosian, /. 1955. Speculations on Hazards of Exposure to Radiations.
Science 122: 586-587.
4. Mawson, C. A. 1955. Geneva. Biology. Scientific American 193 (4): 38—42.
5. Muller, H. J. 1955. Radiation and Human Mutation. Scientific American
193 (5); 58-68.
6. Schubert, J. 1955. Radioactive Poisons. Scientific American 193 (2): 35—39.
7. Sturtevant A. H. 1954. Social Implications of the Genetics of Man. Science
120: 405—107.