Náttúrufræðingurinn - 1956, Blaðsíða 38
32
NÁTTÚRUFRÆÐINGU RINN
slíkri byltingu og svo miklu róti í liugum manna og á háttum.
Ævintýralegar lýsingar á kjarnorkustyrjöldum framtíðarinnar fylla
menn skelfingu, og aldrei hefur verið óttast meir um örlög mann-
kynsins en einmitt nú, þegar það er orðið máttugra en nokkru
sinni fyrr. Með kvíðablandinni eftirvæntingu bíður mannkynið
þess, er koma skal. Er að hefjast öld framfara og velmegunar, glæsi-
legri en nokkurn tíma hefur þekkzt, eða er komið að lokaþætti
liinnar vestrænu menningar? Hvort verður er mjög undir því kom-
ið, livernig til tekst með hagnýtingu kjarnorkunnar.
Þegar talað er um þær hættur, sem mannkyninu eru búnar af
kjarnorkunni, þá hafa menn venjulega í huga þá gereyðingu, sem
beiting kjarnorkuvopna í styrjöid rnundi hafa í för með sér. Mann-
tjónið hugsa menn sér þá reiknað eftir þeim fjölda fólks, sem
beinlínis léti lífið eða lilyti sýnileg örkuml af völdum kjarnorku-
sprengja. En þar með er ekki talið allt það tjón, sem verður á þá-
lifandi kynslóð. Það er annað tjón, sem einnig hlýtur að verða, en
ekki kemur fram fyrr en á eftirkomandi kynslóðum, þ. e. á afkvæm-
um ýmsra þeirra, sem að því er virtist sluppu óskaddaðir út úr
hildarleik kjarnorkustyrjaldarinnar, en báru leynd örkuml á eðlis-
fari sínu. Er liér um að ræða þær skemmdir, sem geislavirk efni
geta valdið á kynfrumum fólks og leiða af sér galla á eðlisfari af-
komendanna, gegnum marga ættliði.
Nú er það sýnilegt, að ekki þarf kjarnorkustyrjöld til þess, að
heilsutjón eða arfgengir ágallar hljótist af geislavirkum efnum eða
af röntgengeislum. Fólk, er starfar í námum, þar sem unnin eru
geislavirk efni, eða við rannsóknir, tilraunir og alls konar frið-
samlega hagnýtingu slíkra efna, eða læknar og hjúkrunarfólk og
aðrir, er vinna með röntgengeisla, geta hæglega beðið slíkt tjón
af völdum geislunar. í þessum atvinnugreinum þarf því sérstaka
aðgæzlu og margs konar varúðarráðstafanir til þess að vernda starfs-
fólkið fyrir verkunum geislanna.
Hér á eftir verður nú skýrt nokkuð frá þeim áhrifum, sem geisla-
virk efni og röntgengeislar geta haft á eðlisfar manmins. En fyrst
verður þó að lýsa nokkuð lögmálum erfðanna og eðli þeirra geisla,
sem hér er um að ræða.
LITÞRÆÐIR OG KON.
Eins og aðrar dýrafrumur, eru frumur mannslíkamans gerðar af