Náttúrufræðingurinn - 1956, Blaðsíða 39
KON OG KJARNORKA
33
tveim aðalhlutum, frymi og kjarna, þó að undanteknum rauðu
blóðkornunum, sem engan kjarna hafa. í frumukjarnanum er litnið,
en það er efni mjög ríkt af kirnissýru. Við hverja kjarnaskiptingu
myndar litnið svokallaða litninga eða litþræði. Er tala þeirra lijá
manninum 48, en litþræðirnir eru samstæðir tveir og tveir og
mynda þannig 24 litþráðapör. Er þá annar litþráður samstæðunn-
ar frá föðurnum, en hinn frá móðurinni.
Hver frumuskipting hefst á því, að kjarninn skiptir sér. Við hina
almennu kjarnaskiptingu klofnar liver litþráður eftir endilöngu,
og fer livor helmingur í sína frumu, svo að livor dótturfruma fær
jafnmarga litþræði og móðurfruman hafði, þ. e. í þessu tilfelli 48.
Þannig fer kjarnaskiptingin fram í þeim frumum, sem byggja upp
meginhluta líkamans. í kynkirtlunum gegnir nokkuð öðru rnáli.
Þar eru sérstakar frumur, sem mynda kynfrumurnar, þ. e. frjóin
og eggin. Við myndun kynfrumanna fer fram kjarnaskipting, sem
er frábrugðin liinni almennu kjarnaskiptingu, og nefnist sú rýri-
skipting. Er munurinn í því fólginn, að við rýriskiptinguna klofna
ekki litþræðirnir í tvennt, heldur skiljast pörin að, þannig að
annar litþráður liverrar samstæðu fer í aðra frumuna, en hinn
í hina. í Iiverri dótturfrumu, þ. e. í hverju frjói og í hverju eggi,
verða aðeins 24 litþræðir. Eru þessar frumur nefndar einlitna, til
aðgreiningar frá líkamsfrumunum, sem hafa 48 litþræði og nefnd-
ar eru tvílitna.
Við frjóvgun renna saman frjó og egg og verður af nýr ein-
staklingur. Þar sem frjóið og eggið, hvort um sig, hafa 24 litþræði,
verða líkamsfrumur alkvæmisins sýnilega með 48 litþráðum, eða
24 litþráðasamstæðum, þar sem annar litþráður hverrar samstæðu
er kominn frá föðurnum en hinn frá móðurinni.
I litþráðunum eru erfðaeiningar þær, sem nefndar eru gen eða
kon. Það eru konin, sem bera eiginleika lífveranna frá ættlið til
ættliðs, frá foreldrum til afkvæma. Allir þessir arfgengu eigin-
leikar til samans rnynda það, sem nefnt er eðlisfar einstaklingsins.
Konin eru mjög mörg, sem eðlilegt er, að minnsta kosti um 10.000
í hverri frumu (5). Vitað er, að þau muni liggja í einfaldri röð eftir
endilöngum litþræðinum, en gerð þeirra og efnasamsetning er lítt
þekkt. Undan hverri almennri kjarnaskiptingu hlýtur að fara fram
tvöföldun allra konanna í hverjum litþræði, svo að hvor hinna nýju
litþráða fái öll sörnu konin, þegar litþráðurinn klofnar.
3