Náttúrufræðingurinn - 1956, Blaðsíða 12
6
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
hámarki árið 1951. Þá nam heildarkarfaveiði Norðurálfu 210 þús.
tonnum, eða rúmlega 3,7% af heildarfiskafla Norður-Evrópuþjóða.
(Skv. skýrslum til 1953).
Mörgum hefur þótt það sæta furðu, hversu vitneskja okkar um
karfann er lítil borið saman við það, sem vitað er um flesta
aðra nytjafiska. En þetta er skiljanlegt, ef við höfum það í huga,
að verulegt kapp er fyrst lagt á karfaveiði eftir 1930, og reglu-
bundnar karfarannsóknir hófust ekki fyrr en nokkru seinna og þá
í smáum stíl. Höfðu þá verið stundaðar reglubundnar rannsóknir
á ýmsum öðrum fisktegundum um áratugi, t. d. þorski og síld.
Er það ekki nema eðlilegt, að megináherzla sé lögð á rannsókn
þeirra tegunda, sem mikilvægastar eru fyrir fiskveiðar þjóðanna.
Hin allra síðustu ár hefur líka komizt aukinn skriður á rann-
sóknir á karfanum með aukinni þýðingu hans. Þessar rannsóknir
eru samt á byrjunarstigi, og vantar mjög mikið á, að hægt sé að
segja um lifnaðarhætti karfans með nokkurri vissu. í ljósi rann-
sókna síðustu ára hafa þó ýmis mikilvæg atriði skýrzt.
Reynt verður hér á eftir að bregða upp mynd af lifnaðarhátt-
um karfans, eftir því sem vitneskja okkar leyfir í dag. En engum
ætti að vera það ljósara en höfundi þessarar greinar, að sú mynd
er mjög ófullkomin.
Heimkynni karfans eru Norður-Atlantshaf. Þótt karfinn sé
nær eingöngu veiddur í botnvörpu, er hann ekki staðbundinn
botnfiskur, heldur lifir hann einnig, a. m. k. á vissum tímum, uppi
í sjó á all miklu dýpi, yfir djúpum úthafsins. Þannig hefur m. a.
veiðst nokkurt magn af karfa á flotlínur á 100 faðma dýpi, á djúpu
vatni úti fyrir Noregsströndum. Enn fremur sýnir útbreiðsla ný-
klakinna seiða hið sama, en að því verður vikið seinna. Utbreiðsla
karfans úti á opnu hafi er ekki þekkt ennþá, enda er hún sennilega
háð ástandi sjávarins hverju sinni og því breytileg. Við strend-
urnar er hins vegar útbreiðslan, svo sem veiðarnar bera með sér:
Frá Cape Cod á austurströnd Ameríku norður til 71. breiddarbaugs
við Vestur-Grænland, við SA-Grænland og strendur íslands, á
hryggnum milli Færeyja og íslands, við strendur Noregs og í Bar-
entshafi allt austur til Nowoja Semlja og norður til Svalbarða. (Sjá
1. mynd). Karfinn lifir á allmiklu dýpi. Er hann einkum veiddur
á 200—500 metrum og jafnvel dýpra, en er sjaldan að fá að nokkru
ráði á minnu en 100 metmm.