Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1973, Page 12

Náttúrufræðingurinn - 1973, Page 12
152 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN þeirri grein, en hún birtist í þessu hefti Náttúrufræðingsins hálf- unnin af hans hálfu og búin til prentunar af Jóni Jónssyni og undir- rituðum. Ekki er að efa, að hefði Guðmundi enzt aldur, myndi sú grein hafa verið betur unnin. Um berghlaupið mikla, sem féll á Steinholtsjökul 15. jan. 1967 ritaði Guðmundur ágætar greinar, og sýna athuganir hans þar og ritgerðirnar, sem hann skrifaði um þetta, hversu vandvirkur hann var og athugull. Árið 1955 urðu þáttaskil í ævi Guðmundar Kjartanssonar sem jarðfræðings, er hann var ráðinn að Náttúrugripasafninu til að gera jarðfræðikort af landinu í mælikvarða 1:250.000. Eftir þetta gat hann helgað sig jarðfræðirannsóknum einvörðungu, jxitt auðvitað yrði hann að sinna ýmsum aukastörfum, svo sem verið hefur um flesta íslenzka náttúrufræðinga. Kortablöðin eiga að vera 9 og eru nú xit- komin 5 blöð. Fyrsta blaðið kom út 1960 og var jrað af Suðvestur- landi.Þá kom út blaðið af Miðsuðurlandi (1962), Mið-íslandi (1965), Miðvesturlandi (1968) og síðast af Norðvesturlandi (1969). Jarð- lræðikort af Miðnorðurlandi var tilbúið til prentunar er Guðmund- ur veiktist haustið 1971. Því miður mun útgáfa þessa kortablaðs dragast, þar eð það hefur ekki fundizt enn, hvorki í fórum hans né á Landmælingum íslands, þar sem kortin voru teiknuð. Á jrví eftir að gera þrjú kortblöð, jr. e. Norðausturland, Austurland og Suð- austurland. Mun hann hafa ætlað næst að vinna Suðausturlands- blaðið, enda átti hann í fórum sínum jarðfræðikort af Álftafirði og Lóni austan Jökulsár, en kort þetta gerði hann, er liann vann Jrar sumarið 1952 að málmleit ásamt Tómasi Tryggvasyni á vegum Rann- sóknaráðs ríkisins. Er vonandi að gerð jarðfræðikortsins verði haldið áfram án tafar, enda er ekkert jarðfræðikort til af landinu nerna kort Þorvalds Thoroddsens frá 1901. Við samningu kortanna studdist Guðmundur vitaskuld við alla fáanlega vitneskju, en hún er reyndar mjög gloppótt, svo að hann varð að fara um öll svæðin. Því ber ekki að leyna, að Guðmundur var stundum um of varfærinn í notkun heimilda, enda eru þær oft misgóðar. Þegar litið er á, hversu mikið verk gerð slíks korts er, má telja undravert hverju Guðmundur kom í verk aleinn. I öðrum lönd- um hefði vafalaust stór hópur manna verið settur til að vinna að slíkri útgáfu. Kortið má teljast nákvæmt miðað við mælikvarðann, þótt ekki munu allir á eitt sáttir, hvað sýna skuli á korti sem jtessu.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.