Náttúrufræðingurinn - 01.03.1973, Blaðsíða 24
168
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Mynd 4. Veggir hrauntraðarinnar Búrfellsgjár cru gerðir úr þunnum hraun-
skánum. — Fig. 4. The walls of the lava river Búrjellsgjá are rnade of Ihin
lava layers. (Ljósm. Guðmundur Kjartansson).
hitt, að hraunrennslið íer allt í einu í annan farveg. Hið síðarnefnda
á við um Búrfellsgjá:
Meðan enn hélzt allmikið hraungos og kvikan beljaði út um
skarðið í vesturbarm gígsins til Búrfellsgjár, brast gat á suðurvegg
hans niðri við rætur. Hrauntjörnin, sem fram til þessa hafði fyllt
gíginn upp á barma, fékk þar nýja útrás, sem var fáeinum tugum
metra lægri en hin fyrri. Yfirborð tjarnarinnar lækkaði að sama
skapi, og síðan rann aldrei hraun til Búrfellsgjár né annars staðar
yfir gígbarminn. Hraunáin í Búrfellsgjá var þar með stemmd að
ósi. Kvikan, sem þar var fyrir, rann burt undan hallanum, svo að
„gjáin" tæmdist að meira eða minna leyti.
Hraunrennsli undan suðurbarmi Búrfellsgigs. — Kringlóltagjá.
Það sem eftir var gossins kom hraunið allt út undan suðurbarmi
gígsins. Það hraun, sem við skuium hér kalla „suðurhraunið", varð
raunar mjög lítið að vöxtum hjá því sem áður hafði runnið vestur