Náttúrufræðingurinn - 1973, Blaðsíða 28
] 68
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Mynd 4. Veggir hrauntraðarinnar Búrfellsgjár eru gerðir úr þunnum hraun-
skánum. — Fig. 4. Thc walls uf ihe lava river Búrfellsgjá are made of thin
lava layers. (Ljósm. Guðmundur Kjartansson).
hitt, að hraunrennslið fer allt í einu í annan farveg. Hið síðarnefnda
á við um Búrfeflsgjá:
Meðan enn hélzt allmikið hraungos og kvikan beljaði út um
skarðið í vesturbarm gígsins tif Búrfellsgjár, brast gat á suðurvegg
hans niðri við rætur. Hrauntjörnin, sem franr til þessa hafði fyllt
gíginn upp á barma, fékk þar nýja útrás, sem var fáeinum tugum
metra lægri en hin fyrri. Yfirborð tjarnarinnar lækkaði að sama
skapi, og síðan rann aklrei hraun til Búrfeflsgjár né annars staðar
yfir gígbarminn. Hraunáin í Búrfellsgjá var þar með stemmd að
ósi. Kvikan, sem þar var fyrir, rann burt undan hallanum, svo að
„gjáin“ tæmdist að meira eða minna leyti.
Hraunrennsli undan suðurbarmi Búrfellsgigs. — Kringlóttagjd.
Það sem eftir var gossins kom hraunið allt út undan suðurbarmi
gígsins. Það hraun, sem við skulum hér kalla „suðurhraunið", varð
raunar mjög lítið að vöxtum hjá því sem áður hafði runnið vestur