Náttúrufræðingurinn - 1973, Síða 21
N ÁTT Ú R U F RÆÐINGURINN
161
um þessai' slóðir, fyrst 1883 og aftur 1899. Hann lýsir þessu skil-
merkilega í ritum sínum (Thoroddsen 1906 og 1911) að öðru leyti
en því, að honum er ekki nógu vel kunnugt um örnefni á eldstöðv-
unum. Hann nefnir hraunið í heild oftast Garðahraun en stundum
Hafnarfjarðarhaun og upptakagíg þess Garðahraunsgíg. Hann þekk-
ir bersýnilega ekki nafn á Búrfelli, að öðrum kosti hlyti hann að
liafa kennt hraunið og gíginn við það fremur en við Garða á Álfta-
nesi eða Haínarfjörð. Þorvaldur lýsir mætavel hrauntröðinni Búr-
fellsgjá og skýrir réttilega uppruna hennar, en hann hefur ekkert
nafn á hana, heldur notar örnefnið Búrfellsgjá ranglega um mis-
gengissprungurnar í Hjöllum austur af Vífilsstaðahlíð og Vatnsenda-
borg.
Þeir sem eitthvað hafa ritað um Búrfellshraun á eftir Þorvaldi
Tlioroddsen, hafa flestir farið að hans dæmi og kennt hraunið í
heild annaðhvort við Garða (t. d. Guðmundur G. Bárðarson, Sig-
urður Skúlason 1933 og Ólafur Lárusson 1936) eða við Hafnarfjörð
(Guðmundur Kjartansson 1954 og Þorleifur Einarsson 1968). En
hvorug þeirra nafngifta hefur náð festu — nema í hinni upphaflegu
merkingu um vissa hluta hraunsins, og mætti gjarna þar við sitja.
En heildarnafnið Búrfellshraun, um allt það hraun sem frá Búr-
felli er runnið, komst fyrst á prent í ritgerð um jarðfræði þessa svæðis
eftir ]ón Jónsson (1965) og öðru sinni í grein eftir Eystein Tryggva-
son (1968). Þetta nýnefni er vel til fundið og einkar hentugt. En
á það ber að líta sem jarðfræðilegt hugtak, og það má með engu
móti útrýma gömlum og grónum örnefnum.
Þó að markmið þessarar geinar sé fyrst og fremst að skýra frá
nýgerðri aldursákvörðun á Búrfellshrauni, skal nú hrauninu samt
fyrst lýst nokkru nánar og raktir kaflar þess frá upptökum til enda.
Kortið, sem hér birtist af Búrfellshrauni (1. mynd) er lítið breytt
frá fyrra korti mínu af hraununum kringum Hafnarfjörð (Guð-
mundur Kjartansson 1954), en þó með smá leiðréttingum eftir nán-
ari könnun, og þakksamlega þegnar ábendingar Jóns Jónssonar jarð-
fræðings.
Búrfell
Eldvarpið Búrfell er hringlaga kambur úr hraunkleprum utan um
stóran eldgíg, Búrfellsgíg. Mundi sú gerð eldvarpa kölluð eldborg í
n