Náttúrufræðingurinn - 1973, Side 23
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
163
Mynd 2. Búrfell og Búrfellsgj.í séð úr lofti frá suðvestri. Misgengið, sem
gengur gegnum gíginn, sést mjög greinilega. — Fig. 2. The crater Búrfell and
the lava channel Búrfellsgjá. A fault goes straight through the volcano. Aerial
view from .S'IF. — (Ljósm. Jón Jónsson).
En þær sem nær féllu gosstróknum voru linar af hita. I>ær klesst-
ust saman í fallinu lag ofan á lag í mun samfelldari og traustari
hraunsteypu, sem þó er öll smáholótt. Það köllum við klepra og
eru þeir meginuppistaðan í eldvarpinu. Að innanverðu eru gíg-
veggirnir brynjaðir hraunkleprum. Þeir eru nokkuð lagskiptir og
hallar klepralögunum bratt niður í gíginn. Á norðurbarmi gígsins
skagar kleprabrynjan upp úr hinni lausari gosmöl í utanverðri
gígbrekkunni og myndar hvassa egg, sem er hátindur Búrfells. Þetta
sýnir, að nokkuð hefur rofizt ofan af og utan úr Búrfelli, væntan-
lega af völdum storma og jarðskriðs, síðan það Idóðst upp. En einnig
hefur mjög hrunið úr kleprabryn junni niður í gíginn, og er þar
nú stórgrýtisurð í botni. Auðvelt er að ganga þangað niður á þeim
tveimur stöðum, þar sem gígbarmurinn er lægstur, að sunnan og
vestan, en illkleift annars staðar.
Norðan Búrfells liggja berar, jökulrákaðar grágrýtisklappir því