Náttúrufræðingurinn - 1973, Side 26
NÁTTÚRU F RÆ ÐINGURINN
166
Mynd 3. Hrauntröðin Búrfellsgjá. — Fig. 3. The lava channel Búrfelisgjd.
(Ljósm. Guðmundur Kjartansson).
hraun frauðkennt líkt og kleprarnir í gígnum og víðast greinilega
lögótt. Lögin eru þunn, fáir sentimetrar, og hallast á ýmsa vegu.
Uppi á börmunum virðist þeim yfirleitt halla eins og yfirborði
hraunsins, þ. e. lítið eitt burt lrá hrauntröðinni, og má ætla, að
hvert lag samsvari skammæju flóði þunnrar kviku úr hraunánni
upp úr farvegi hennar. f gjáveggjunum má sums staðar líta þessi
hallalitlu lög skorin um þvert, en annars staðar eru þeir brynjaðir
lóðréttum lögum, sem virðast liafa smurzt hvert utan á annað og
þrengt tröðina. Og loks liggja þessi lög sums staðar í sveigjum og
fellingum, sem gefa í skyn, að veggir traðarinnar hafi verið linir
af hitanum frá hraunánni og látið undan straumi hennar. Þess sér
og merki, nálægt rótum Búrfells, að deigkennd hraunflikki hafa
hálflosnað úr neðanverðum traðarveggnum, rifnað frá honum að
ofanverðu, hnigið af þunga sínum, en harðnað að nýju og hætt
við að detta.
í Heklugosinu 1947—1948 rann meginhraunið kílómetrum og
mánuðum saman eftir hrauntröð, sem um margt líktist Búrfells-
gjá. Þar horfði ég oftar en einu sinni á sams konar deigkennd flikki