Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1973, Síða 33

Náttúrufræðingurinn - 1973, Síða 33
N ÁTT Ú R U F RÆÐINGURINN 173 nálægt því sem hann verður allra lægstur. Örskammt norðan við réttina ná a. m. k. tvær af hinum minniháttar misgengissprungum, neðan (austan) við meginbrotstallinn, niður fyrir grunnvatnsborð, svo að vatn stendur í þeim. Dýpt niður að vatnsborði er 5—6 m og gjárnar svo þröngar, að í fljótu bragði er þar myrkur eitt niður að líta. En er betur er rýnt og sjáöldrin þenjast, glittir í vatnið. Auðvelt er að klifra niður í enda annarrar gjárinnar alveg að vatns- borði, og hafa þar verið hlaðin þrep til að greiða leiðina. Þarna var vatnsból réttarmanna við Gjáarrétt. 1 þau tvi) skipti (16/3 1950 og 23/3 1954), sem ég hef stungið hitamæli í þetta vatn, mældist Joað 3,5°. Við nána aðgæzlu má greina ofurhægan straum til suðvesturs í vatni beggja gjánna. Lötigu hraunáhnurnar Hér að framan hefur leið Búrfellshrauns aðeins verið rakin fá- eina kílómetra frá upptökum, norðvestur að misgengisstallinum mikla, sem sker })að um ])vert suðvestur frá Hjöllum. Ofan (suð- austan) þeirrar markalínu er ýmislegt á lnddu um takmörk hraun- flóðsins, eins og þegar er getið. En neðan (norðvestan) hennar bregð- ur svo við, að hraunjaðrarnir eru allsstaðar glöggir og ótvíræðir. Þá má fullyrða, að sá hluti alls Búrfellshrauns, sem enn hefur ekki verið rætt um, er mikil meirihluti ])ess. Eins og áður segir rann Búrfellshraun í tveimur kvíslum norð- vestur yfir misgengisbrúnina, annarri vestur af ICaldárseli, hinni hjá Gjáarrétt. Það er einsætt, að syðri kvíslin, sem hér verður til bráðabirgða kölluð „Kaldárhraun", rann fyrr í gosinu. í henni er Lambagjá, leifar hrauntraðar, sem fylltist að mestu er á leið gosið. Ætla má, að sú kvísl hafi lagt leið sína um lægsta skarð, sem þá var í misgengisbrúninni. Þessi hraunálma stefnir litlu vestar en norður á leið sinni milli Fremstahöfða og Miðhöfða að vestan og Sléttu- hlíðar að austan, en hverfur þar undir Gráhelluhraun, sem er kvísl lir nyrðri hraunálmunni, runnin síðar í gosinu. Sennilega hefur Kaldá fyrrum runnið þessa leið, sem „Kaldár- hraun" rann síðar, og hefur áin þá átt sér farveg ofanjarðar um hraunlausan dal, þar sem nú liggja „Kaldárhraun“ og Gráhellu- hraun, alla leið í botn Hafnarfjarðar. Hin nyrðri meginkvísl Búrfellshrauns, sú sem rann yfir brot-

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.