Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1973, Qupperneq 51

Náttúrufræðingurinn - 1973, Qupperneq 51
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 191 móðuflá og nýju rústirnar á heiðinni hurfu ekki úr liuga mér. 1 síðustu viku júlí 1971 lagði ég á hesta og hélt fram á Grímstungu- Iieiði. Leið mín lá fram hjá Ulaflóa, sem er löng en fremur mjó flá norðarlega á heiðinni, um 450 m yfir sjó. Þar kom ég auga á nýja rúst. Hún var aflöng, annar jaðarinn brattur og þíð jörð fast að honum, hinum megin og við annan endann náði klaki talsvert út fyrir jaðra. Efst á rústinni voru 15 crn á klaka. Svörtu blettirnir í Öldumóðuflá reyndust vera gamlar rústa- leifar, þær einu, sem ég hef séð á Grímstunguheiði. Sumar voru máðar og án allra nývirkja, aðrar sprungnar. Þetta var í þurrkatíð og jarðvatn stóð lágt. Við rústirnir voru skálmyndaðar dældir og pollar í þeim flestum, sumir nokkuð djúpir. Augljóst var, að dæld- irnar gætu fyllzt af vatni. í háhryggjum allra rústanna voru um 40 cm á klaka. Rústirnar stóðu þétt, en örskammt frá og nær jaðri fláarinnar voru stórar, ósprungnar og algrónar þúfur, sem mig grun- ar að hafi risið veturinn áður. Þar voru 25—30 cm á klaka. Rústa- svæðið í flánni var ekki blautara en það, að hægt var að ganga um það á lágurn skórn án þess að vökna í fætur. Lækur rennur í 100—180 cm djúpum skurði skammt frá rústunum. í botninum var leðja og ég náði ekki niður á fast með 60 cm löngum járnteini. Ekki sá ég nein merki þess, að lækurinn hefði grafið sig niður á síðari árum. í siiinii ferð kom ég að Ketilholuflá á Grímstunguheiði. Hún ligg- ur í keri, marflöt og mjög blaut. Uppsprettulækur, talsvert vatns- mikill, rennur bakkafullur í gegnum hana norðanverða og yfir lágan ás, sem heldur vatninu uppi. Hann er blátær. Annar minni og miklu styttri kemur sunnan úr flánni og má heita tær. Mýravatn virð- ist því ekki renna svo neinu nemi úr flánni. í tungunni milli lækj- anna voru nýjar rústir og klaki í kolli þeirra á nálægt 15 crn dýpi. Ein rústin var mjór, svartur hryggur, mikið sprunginn að endilöngu, hinar hálfkúlulaga og mjóar sprungur í þeim öllum. Engin þeirra líktist venjulegum þúfum. Ég kom aftur að rústunum í seinni göng- um um haustið. Þá litu þær eins út, nema hvað flestar stóðu að meira eða minna leyti í vatni, því að mikil votviðri höfðu gengið að und- anförnu. Mér er ekki kunnugt hvaða ár rústirnar risu, en sumarið 1968 gekk ég yfir þetta svæði án þess að koma auga á nokkur nývirki í flánni. Þann 18. september haustið 1972 fór ég fram í Ketilholuflá til
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.