Náttúrufræðingurinn - 1973, Page 53
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
193
1. mynd. í Ketilholuflá. Margar svona þúfur voru austan við lækinn, sem
kemur sunnan úr l'lánni. Steinar voru ofarlega i þúfunum en enginn klaki.
Skóflan stendur á steini. — Many such palsas were in Ketilholuflá. Inside the
palsas there xuere stones but no ice. — Ljósm. Björn Bergmann 20. sept. 1972.
hafði þó áður séð margar og miklar rústir ú Grímstunguheiði. Næst
sá ég yfir flóann sumarið 1948, en minnist þess ekki að hafa séð
neina svarta þúst þá. Sumarið 1962 gekk ég í fyrsta skipti yfir
hann, að vísu ekki nerna um norðurhlutann, og rakst þá á 2 eða
3 virkar rústir. Þær voru talsvert sprungnar, en að mestu grónar,
og skorti alla reisn á móts við sínar mæður. Sneið hafði klofnað
frá einni þeirra og fallið á kaf í djúpan poll. Þurrlendisplöntur
skörtuðu fullum skrúða í vatninu og sýndu, að stutt var síðan þær
höfðu búið í öðru og betra umhverfi. í flóanum var fjöldi af grón-
13