Náttúrufræðingurinn - 1973, Blaðsíða 55
NÁTTÚRUF RÆÐÍNGURINN
195
því var ein kolsvört rúst, 5 m á lengd, 2,5 m á breicld og um 60
cm á hæð. Hún var ávöl, hærri í annan endann og lá þvert á sundið.
Enginn lækur rennur úr sundinu, en vatn þaðan getur ekki fallið
aðra leið en í Þórarinsvatn. Á hrygg rústarinnar voru 21—24 cm
á klaka og lítið eitt dýpra á hliðunum, mælt þvert á þær. Vatn
flaut yfir grasrótina allt umhverfis rústina og norðar í sundinu
var tjörn.
Við norðvestur horn vatnsins er lítil flá. Enginn lækur rennur
þaðan, en þar er tjörn og nokkrir pollar. Þarna vorn margar svartar
flesjur, jtaktar dauðum mosa og bunguðu ofurlítið upp. Þar rnátti
mosinn heita þurr og 25—30 cm á klaka. Utar var mosinn vatnsósa
og 38 cm á örþnnnt klakalag, en undir því var annað á 58 cm dýpi
og í gegnum það gat ég ekki höggvið. Ég hef hvergi annars staðar
séð rústamyndanir af jDessn tagi, nema hvað flesjan í Ulaflóa er
skyld. Mér hugkvæmdist ekki að taka með mér járnkarl og skóflu
og grafa í flesjurnar, en ég hygg, að í höfuðatriðum séu ]>ær mynd-
aðar á sama Iiátt og venjulegar rústir. Ef það reynist rétt finnst mér
ástæða til að ætla, að svipað geti hent í marflötum, rökum túnum og
orsakað kal.
Vestan við Þórarinsvatn er fláin, sem ég kom að haustið 1970.
Hún er mjó og nær fram á vatnsbakkann á löngum kafla, en nyrzt
gengur hún fram á milli holta. Þar voru margir rústakollar, flestir
að meira eða minna leyti gráir af sinu en sumir nokkuð grónir. í
einum kolli sá ég stein, sem mosinn hafði flagnað ofan af. Steinninn
var um 40 cm í þvermál og fastur í klaka. Mér virtist steinninn ekki
geta verið jarðfastur og ég álít, að hann hafi lyfzt frá botni. Þessi
flá er víða svo grunn, að ég náði niður á möl með 1 m löngum teini,
og á sumum þeim svæðum voru rústakollar.
Þann 19. ágúst sumarið 1972 gekk ég um flá örskammt sunnan
við Ullarkvísl á Auðkúluheiði. Sandá rennur í nokkuð djúpum far-
vegi austan við flána, en að vestan eru þurrir ásar. í bökkum Sandár
voru gildir rauðamolar. Ekki sá ég neinar nýjar rústamyndanir í
flánni, en þar er mikið af gömlum rústaleifum, sem flestar eru
litlar og allar grónar. Þær stærstu eru flatar, hinar ávalir hryggir.
Á rústunum voru 45—60 cm á klaka, en meginhluti flárinnar var
klakalaus, a. m. k. fannst hann ekki á 1 m dýpi. Rústirnar voru
óvirkar, en máðar sprungur bentu til þess, að þær hefðu verið
virkar fyrir einu til tveimur árum. Pollar voru hér og þar í flánni,