Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1973, Page 61

Náttúrufræðingurinn - 1973, Page 61
N ÁTT Ú RU F RÆÐÍNGURINN 197 ekki vitnað eins langt aftur í liðna tíð. Sandá rennur nú í djúpuin farvegi við austurjaðar fláarinnar. Ég gat ekki séð nein merki þess, að áin hefði grafið sig niður á síðari áratugum. Hins vegar fannst mér landið austan fláarinnar bera þess ljós merki, að þar hefði áður verið flá, þó að nú sé það alþurrt og tekið að eyðast. Ein af mörgum upptakakvíslum Vatnsdalsár heitir Þjófakvísl. Vestan við hana, fast upp við Stórasand, er stór, þurr grasflesja. Þar er síðasti áningarstaður gangnamanna áður en þeir leggja á auðnir Stórasands. Ég hafði mjög oft áð þarna, en það var ekki fyrr en veturinn 1971, sem ég fór að velta því fyrir mér, hvernig flesjan hefði litið út fyrir 50—60 árum. Um sumarið fór ég þangað og þá taldi ég mig sjá þar nokkurn veginn örugg merki um uppþornað votlendi og það jafnvel fyrir austan kvíslina, en þar er blettur, sem hefur blásið talsvert upp. Síðar sagði Lárus Björnsson í Gríms- tnngu mér, að þarna hefði verið blantt á fyrsta áratug aldarinnar, en hann kvaðst ekki muna, livenær flesjan liefði þornað. Mér þykir eftirtektarvert, að á Auðkúluheiði er miklu meira af rústaleifum heldur en á Grímstunguheiði. Heiðarnar liggja hlið við hlið, en eru þó á margan hátt ólíkar. Á nokkrum hluta Auð- kúluheiðar, Helgufellssvæðinu, hefur orðið mikill uppblástur og jarðvegurinn þaðan borist norður og norðvestur á heiðina. Þar er víða mjög þykkur, þurr jarðvegur á hæðum og ásum. Á Gríms- tunguheiði er þurr jarðvegur miklu þynnri. Þar er Stórisandur í suðri. Hann mun aldrei hafa verið gróinn og þaðan berst næstum ekkert áfok. Jarðvegur á Auðkúluheiði mun vera meira blandaður eldfjallaösku heldur en jarðvegur á Grímstunguheiði, og þar er miklu meira af lyngi og hrísi. Allar flár, sem ég þekki á Auðkúlulteiði og Grímstunguheiði, og fullvíst er að liafa þornað að meira eða minna leyti á síðari áratug- um, eiga það sameiginlegt, að í gegnum þær eða fast við þær er djúpur vatnsfarvegur. Rústirnar evddnst jafnskjótt og jarðklakinn þiðnaði, en hann mun hafa komið í veg fyrir, að vatnið í flánum gæti sigið í jörð og náð framrás í farvegina. Kjarni nýju rústanna er ís, en ekki jarðvegur, og gömlu rústirnar munu liafa verið byggðar upp á sama hátt. Mér finnst það því liggja ljóst fyrir, að jiegar kjarninn þiðnaði hafi myndast dæld, en jaðrarnir ekki sigið að satna skapi, vegna þess að í þeim var meiri jarðvegur. Þetta gildir þó ekki um flár, sem liggia í keri eða eru forblautar af völdum

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.