Náttúrufræðingurinn - 1973, Page 64
200
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Hellnum og Stapa og dálítið á Reyðarfirði. Lambaklukka er komin
í garða á Reyðarfirði. I Ólafsvík hefur blóðkollur lagt uudir sig
talsverðan hluta kirkjugarðsins. í vegjaðri, spöl innan við Ófafsvík
vex silfurhnappur (Achillea ptarmica), hinn gróskulegasti, og
gæsajurt (A?ilhemis arvensis). Gæsajurtin sést einnig víða í Reykja-
vík og grennd. Virðist hafa kornið með grasfræi. Sást einnig á Laugar-
vatni og víðar. Akurfax (Bromus arvensis) í Ólafsvík. Geitakál
(Aegopodium podagrarta) í garði að Heiðarvegi 2, Reyðarfirði. I
Reykjavík hefur grísafífill (Sonchus arvensis) vaxið í nokkur ár of-
an við umferðarmiðstöðina, innan um þistil, njóla og húspunt. I
sumar var grísafífillinn 80—120 cm á hæð og bar talsvert á hinum
gulu körfum hans. Hvítur mjólkursafi er í stöngli. Vætudúnurt
(Epilobium adenocaulon) breiðist út í görðum í Reykjavík. Lang-
stórvaxnasta dúnurt hér á landi, um hálfur metri á hæð eða meira.
Blóm lítil ljósrauð. Talsvert bar á akurkáli og útlendri baldursbrá í
nýrækt víða um landið. Á Hellnum er belti af umfeðmungi ofan við
malarkambinn og á mýraflæðum ögn ofar vex vætusef og skriðstör
(Carex Mackenziei). Hérafífill (Lampsana communis) sást hér og
hvar í Reykjavík og Hafnarfirði. Hefur auðsjáanlega borist með út-
lendu grasfræi. Akursjóður (Thlaspi arvense) í Vopnafjarðarkaup-
stað og hjá Einarsstöðum í Vopnafirði. Völudepla (Veronica cham-
aedrys) á Einarsstöðum (Lára Einarsdóttir).