Samvinnan - 01.08.1967, Side 9

Samvinnan - 01.08.1967, Side 9
Á tólf ára afmæli indverska lýðveldisins 1959 brá Nehru á leik og setti upp ýmis sérkennileg höfuðföt. Yzt til vinstri er hann með „fangelsis- kolluna", sem hann bar að staðaldri, því næst með vefjarhött frá Raja stan-fylki, síðan með gullbryddaðan vefjarhött frá Mysore-fylki og loks með höfuðbúnað Naga-ættbálksins í Assam-fylki. er stéttavandamálið, sem reynzt hefur afartorvelt viðureignar, þráttfyrir stranga löggjöf gegn stéttamisrétti. I utanríkismálum stóð Nehru jafnan fremstur í fylkingu þeirra leiðtoga sem leituðust við að vera óháðir hinum stóru valdablökkum, og oft hallaðist hann á sveif með kommúnistaríkjunum, ekki sízt Kínverjum. Innrás þeirra í Indland haustið 1962 olli honum því sárum von- svikum og leiddi til þess að hann varð að taka afstöðu sína í alþjóðamálum til endurskoðunar. Það talar skýru máli um stöðu Nehrus með þjóð sinni, að þrátt- fyrir reiðina, vonbrigðin, auðmýkinguna og ákærurnar, sem stefna hans gagnvart Kínverjum vakti, beið orðstír hans ekki neinn umtalsverðan hnekki. Nehru var einatt ósamkvæmur sjálf- um sér og kom mönnum gjarnan á óvart með orðum sínum og athöfnum. í því sambandi er ekki nema sanngjarnt að hafa hugfast, að hann var barn síns tíma, alinn og mótaður við mjög óvenjulegar aðstæður. Hann gat ekki fremur en aðrir flúið fortíð sína. Einsog allir þeir bylt- ingarleiðtogar, sem börðust gegn ný- lenduveldi Evrópurikja í Asíu og Afríku, var hann einskonar brú milli fortíðar, sem hlaut að móta allar hans gerðir, og framtíðar sem mótast af nýjum mönn- um með aðra reynslu og ólíka viðmiðun. í þessu er sennilega fólgin nærtækasta skýringin á stjórnmálamanninum Nehru. En einstaklingurinn Nehru tók sára- litlum breytingum frá árunum þegar hann sat í fangelsum og gerði upp sakir við sjálfan sig og umheiminn. Þráttfyrir frægð, vinsældir, aðdróttanir, ásakanir og sautján erfið ár við stjórnvöl fjöl- mennasta lýðræðisríkis á jörðinni, var hann sem fyrr einmana og innhverfur hugsuður, einsog hann birtist í Sjálfs- œvisögunni. Hann var alla tíð jafnná- kominn hinum nafnlausa manngrúa Ind- lands, sem örvaði hann og blés honum í brjóst nýjum þrótti í sjálfstæðisbar- áttunni. Ég heyrði hann eitt sinn tala fyrir um 20.000 manna hópi í Bombay, og það var engu líkara en hann yngdist upp á ræðupallinum. Þó efast ég um að meir en þriðjungur mannfjöldans hafi fylgzt með því sem hann var að segja. Fólkið kom fyrst og fremst til að vera nálægt leiðtoganum — föðurímyndinni — draga til sín blessun og kraft frá honum. Þetta er sérkenni Indverja: þeir hafa yfirleitt trúarlega afstöðu til leið- toga sinna og nægir að vera í návist þeirra. Nehru losnaði heldur aldrei við annmarkana sem Gandhí gagnrýndi hann fyrir, og eftir fráfall meistarans var enginn til að hafa hemil á skapi hans, ákefð og óþolinmæði. Mér er í fersku minni frá því ég hitti hann í Nýju-Delhi fyrir tæpum sjö árum, hve alúðlegur og hispurslaus hann var í viðræðu, en svo gat hann fyrirvaralaust rokið upp, þegar ljósmyndarar eða blaðamenn gerðust of nærgöngulir. að er til marks um heiðarleika Nehrus og raunsætt mat á sjálfum sér, að árið 1936 eða þarumbil skrifaði hann í hálf- kæringi blaðagrein undir dulnefni, þar sem hann sálgreindi sjálfan sig á mjög opinskáan hátt og hugleiddi framtíðina. Þar segir m. a.: „Við venjulegar aðstæður væri hann einungis duglegur og farsæll embættismaður, en á yfirstandandi bylt- ingarskeiði liggur einræðið ævinlega við dyrnar, og er ekki hugsanlegt að Jawa- harlal eigi eftir að ímynda sér að hann sé Sesar? í því felst hætta bæði fyrir Jawaharlal og Indland“. í vissum skiln- ingi rættist þessi spá. Hann varð nokk- urskonar Sesar, bæði nefndur „göfugur harðstjóri“ og „lýðræðislegur einræðis- herra“. Hvorttveggja má til sanns vegar færa. Hann þoldi illa gagnrýni og var fyrir bragðið að mestu umkringdur já- mönnum. Þetta var sennilega alvarleg- asti brestur hans. í landi þar sem tugir milljóna manna voru að berjast við sár- ustu örbirgð og reyna að skapa sér mann- sæmandi lífskjör gat enginn einn ein- staklingur haft alla tauma í hendi sér, hversu miklum hæfileikum sem hann kynni að vera búinn. Vandamálin voru of stór og ákvarðanir of margþættar fyrir einn mann. Þegar ég var í Indlandi var mér tjáð af ýmsum embættismönn- um og erlendum erindrekum, að stjórn landsins lamaðist og enginn áræddi að taka mikilvæga ákvörðun, þegar Nehru brygði sér frá höfuðborginni, hvort held- ur væri til næstu borgar eða útlanda. Hann talaði oft um framtíðina og gerði jafnvel áætlanir langt fram í tímann, en virtist sjaldan leiða hugann að því hvað við tæki þegar hann væri allur. Bæri málið á góma, kvaðst hann hafa óbilandi trú á eðlisborinni lýðræðis- hneigð þjóðarinnar, og má segja að í því efni hafi léttúð hans eða bjartsýni verið um skör fram. Það varð hinsvegar gæfa Indverja að við fráfall Nehrus valdist til forustu dug- legur, gáfaður og göfugur maður, Lal Bahadur Sjastri, sem stjórnaði landinu af festu og mikilli lagni. Þegar hann féll frá tók við hlutverkinu einkabarn Nehrus, frú Indíra Gandhí, og naut hún að sjálfsögðu töfraljómans sem leikur um nafn föður hennar. Verður fróðlegt að fylgjast með hvernig hún ávaxtar þann mikla arf sem faðir hennar lét eftir sig. s-a-m. 9

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.