Samvinnan - 01.08.1967, Qupperneq 15
en að hinu innra starfi hans,
starfsgrundvellinum hefur
aldrei verið hugað. Sú arfleifð,
sem fyrir var í Lærða skólan-
um, tók sér bólfestu í hinum
almennu skólum og situr þar
óbreytt sem fastast enn.
2. Til eru tvær stefnur í upp-
eldisfræði: Önnur álítur að
orðið sé eitt saman uppspretta
allrar þekkingar. Þekking sé
ekki annað en hugmyndir
mannsandans klæddar í orð.
Allt nám sé í því fólgið að til-
einka sér þessar hugmyndir
með tilstyrk orðanna. Það er
hin platónsk-þýzka stefna,
sem hefur dagað uppi í ís-
lenzkum skólum. Á þessari
stefnu eru kennsluaðferðir
byggðar (lexíu-yfirheyrsluað-
ferðin), kennslubókagerð okk-
ar (tröllatrú á prentsvertu
sem einhlítum þekkingarmiðli)
og skólabyggingastefna okkar
(gert er einungis ráð fyrir
nemendum, kennurum ásamt
kennslubók innan veggja skól-
anna).
3. Hin stefnan í uppeldis-
fræði lítur svo á, að hlutirnir
séu uppspretta þekkingarinnar,
náttúran, óháð manninum, og
reynsla mannanna í viðskipt-
um þeirra við hana, sé efni
þekkingarinnar, sem tjáð er
svo með orðum og táknum.
Uppspretta þekkingarinnar sé
í tengslum manna við hlutina.
Þetta er hin empíríska stefna,
en helztu fulltrúar hennar
hafa verið uppi meðal ensku-
mælandi þjóða, allt frá Prancis
Bacon og John Locke. Þetta er
stefna nútíma (náttúru)vís-
inda, stefna nútímans. Hún er
nær óþekkt hér á landi.
4. ítroðsluaðferðin, byggð á
hinni öldnu miðaldareglu:
hlýða og læra, er ríkjandi. Nýj-
ar hugmyndir hafa blandazt
hinu ríkjandi kerfi fyrir at-
beina einstakra manna, sern
hafa stundað nám eriendis, en
þær hafa komið hikandi og til-
viljunarkennt án þess þær
mörkuðu nokkur varanleg spor.
Allir kvarta og eru óánægðir
með hið ríkjandi kennslukerfi,
en engin ný stefna hefur
nokkru sinni verið mörkuð og
endurbótabaráttan er því háð
í blindni.
5. Fremsti fulltrúi þýzkrar
heimspeki meðal núlifandi ís-
lendinga, Matthías Jónasson,
hefur ekki séð sér fært, að
framfylgja út í æsar hinni
platónsk-þýzku stefnu. Bók
hans, „Nýjar menntabrautir“,
er samhristingur úr hinum
tveim ofannefndu stefnum. Á
þeim grundvelli verður engin
endurnýjunarbarátta háð.
6. Ástandinu í íslenzkum
skólamálum verður helzt lýst
með orðunum botnlaust öng-
þveiti.
Til þess að ráða nokkra bót
á því öngþveiti nægir þó ekki
það eitt að afla nýrri skóla-
stefnu viðurkenningar. Þá
fyrst má búast við að rofa taki
til, þegar skapast hefur all-
traust siðmenning á grundvelli
nýrra atvinnu- og þjóðlífs-
hátta, sem tekur við af gömlu
bændamenningunni. Slík
menning er enn ekki til. Hún
skapast ekki heldur nema hag-
nýttir séu allir tiltækir kraftar
til rannsókna og skapandi
starfs á sviði húmanískra
fræða: heimspeki, siðfræði,
uppeldisfræði, félagsfræði, sál-
arfræði, að ógleymdri sögu
þessara greina, sögu íslenzkra
skóla frá Haukdælum til okkar
daga og sögu þjóðarinnar í
heild. (Það er þjóðarskömm og
svívirðing, að enn skuli engin
íslandssaga vera til). Sú vís-
indastarfsemi þarf að haldast
í hendur við lífið, við reynsl-
una. Teorían verður að tengj-
ast hinu empíríska.
7. Öll vísindi leita sannleik-
ans. En hann er gagnslaus
nema hann fái að koma óhindr-
að í Ijós, nema ríkið setji ekki
hömlur fyrir leitinni að honum
og tjáningu hans. Svo lýðfrjálst
er hið íslenzka ríki ekki. Hið
frjálsa orð er bundið ótal tak-
mörkunum. Valdinu er beitt
miskunnarlaust í þágu þröngra
flokkssjónarmiða. Hver sá, sem
lætur í ljós óþægilega gagn-
rýni, er settur utangarðs til
þess að hindra hann í að beita
sér. (Og það getur hann ekki,
nema hann sé sérstaklega vel
fjáður, en það eru mennta-
menn ekki). Ungir menn, sem
ráðast í þágu skólakerfisins,
verða að gæta þess að segja
ekkert, sem komið gæti við
kaunin á valdhöfunum, þeir
verða og helzt að bregða á sig
réttum flokkslit. Það getur
bundið enda á alla framavon,
ef eitthvað er sagt, sem er lík-
legt til að falla illa í kram
„ráðuneytisins“. Þess vegna
gera menn það heldur ekki og
halda áfram að vera taglhnýt-
ingar valdsins eftir a'ð þeir eru
komnir í æðstu stöður (t. d.
fræðslumálastjóri og skóla-
stjóri Kennaraskólans).
Vissulega er það eðlislægt
öllu valdi að vilja hafa slétt-
greidda menn, sem sofa vel á
nóttum, í návist sinni. Aðrir
eru slæm handbendi, og vald-
inu væri þá máttar vant við
að koma fram vilja sínum. En
engin framför verður nema
valdið sé neytt til að taka til-
lit til hinna, sem hvorki eru
sléttgreiddir né sofa vel á
nóttum. Slíkt kostar oft langa
baráttu. Líklega tekur barátt-
an fyrir lýðræðinu engan enda,
meðan valdið varir. Langt
verður að bíða þess, að sá hæf-
asti gangi ætíð fyrir. En mis-
beiting valdsins í þágu flokks-
hagsmuna kemur niður á skól-
unum. Þeir eru afsprengi lýð-
ræðis og þrífast illa án þess
(sjá I, 2).
8. Af ofangreindum sökum er
engin frjáls akademía til á ís-
landi. Hugsjón miðalda um að
sá, sem styður menntir, hafi
engan íhlutunarrétt um árang-
ur eða niðurstöður, á ekki upp
á pallborðið í fangelsinu fyrr-
verandi við Lækjartorg.
Heimska, skilningsleysi og
nízka valdhafanna sér um að
halda frjálsri hugsun alveg
niðri við frostmark. Það er eng-
inn Galílei til á íslandi, vegna
þess að hann hefur ekki efni
á að hugsa. Hinir löggiltu
hugsuðir ríkisins segja aldrei
neitt óþægilegt. Að vísu sprett-
ur rektor háskólans fram einu
sinni á ári, eins og kú-kú-fugl
á svissneskri klukku, og held-
ur mikinn og skörulegan reiði-
lestur um ófremdarástand aka-
demíunnar. En það er aðeins
einu sinni á ári. Þess á milli
hvílir hann á lárviði.
„Allir kvarta og eru óánœgðir með liið ríkjandi kennslu-
kerfi, en engin ný stefna hefur nokkru sinni verið mörkuð
og endurbótabaráttan er því háð í blindni.“
„Ástandinu í íslenzkum skólamálum verður helzt lýst með
orðunum botnlaust öngþveiti."
„Valdinu er beitt miskunnarlaust í þágu þröngra flokks-
sjónarmiða. Hver sá, sem lœtur í Ijós óþœgilega gagnrýni,
er settur utangarðs til þess að hindra liann í að beita sér.
(Og það getur liann ekki, nema hann sé sérstaklega vel
fjáður, en það eru menntamenn ekki). TJngir menn, sem
ráðast í þágu skólakerfisins, verða að gæta þess að segja
ekkert, sem komið gæti við kaunin á valdhöfunum, þeir
verða og helzt að bregða á sig réttum flokkslit. Það getur
bundið enda á alla framavon, ef eitthvað er sagt, sem er
líklegt til að falla illa í kram „ráðuneytisins“.“
15