Samvinnan - 01.08.1967, Qupperneq 23

Samvinnan - 01.08.1967, Qupperneq 23
Ég hef rætt mál þessi við Baldur Ingólfsson, mennta- skólakennara. Hann sagði m. a.: „Börnin sleppa alltof vel í barna- og gagnfræðaskólun- um. Þar eru gerðar alltof litlar kröfur og slugsað við margt".1) Með snarpari vinnubrögðum mætti stytta námið þannig að stúdentar brautskráðust 18 ára, t. d. með því að hefja kennslu í 6 ára aldursflokki — sbr. orð háskólarektors í fyrr- nefndri ræðu — „þá er ég þeirrar skoðunar að 6 ára börn hér í þéttbýlinu séu beinlínis andlega vannærð" — og einnig mætti sameina 9 og 10 ára bekkina. „Þess vegna kemur þessi óg- J) Sbr. einnig greinina: Menntun og múrverk eftir undirritaðan, í 40 ára afmælis- riti Heimdallar, Heimdallur fjörutíu ára, 1967, bls. 35—42. urlegi sprettur fyrir landspróf og í 3ja bekk í menntaskólun- um“, hélt Baldur Ingólfsson áfram. — „Það þarf að efla barna- og unglingaskólana til mikilla muna, styrkja kennslu þar og auka menntun kennar- anna. Til dæmis er áberandi, hvað við erum orðin á eftir í stærðfræði. Og í bókstaflegum skilningi þori ég að fullyrða, að menn komi að stúdentsprófi illa læsir og lítt skrifandi." Þetta er þá uppskeran .eftir margra ára ræktunarstörf. Ekki er hún nú glæsileg. Má ég þá heldur biðja um það „skóla- kerfi“, sem var í gamla daga. Þá lærði fólk þó að minnsta kosti að tala og heyja sér orða- forða. Nú er raunar svo komið, að sáralítil eða engin áherzla er lögð á íslenzka tungu og ís- lenzkar bókmenntir í skóla- kerfinu, en þær hafa verið kjölfesta íslenzkrar menning- ar um aldaraðir. í mennta- skólunum er meiri áherzla lögð á Ablativus Absolutus og Vernerslögmál heldur en að kenna fólki að tala og skrifa móðurmálið, eða herða það í eldi fagurra bókmennta. Siík þróun á auðvitað eftir að hefna, sín. En hún kemur því miður ekki niður á þeim sem ætti — hirðulitlum og lágt hugsandi kennurum — heldur saklaus- um unglingum. Akrinum sem ég nefndi áðan. Af starfi minu get ég t. d. fullyrt að stúdents- próf er engin trygging fyrir því, að ungt fólk geti skrifað íslenzku stórslysalaust. Nú er talað af fjálgleik miklum um að auka þurfi þjóðrækni með unglingum og hefur það verið rætt á mál- þingi kennara. Er ekki ástæða til annars en fagna þeim á- huga. En það þarf ekki að vefja þjóðræknina — eða öllu heldur þjóðerniskenndina — inn í neinar „finar“ umbúðir skrafs og yfirlýsinga. Auðvitað er aðeins til ein leið í þessum efnum, sem orðið getur til ein- hvers gagns, þ. e. að kenna börnum og unglingum sögu okkar, tungu og bókmenntir, svo að mannsæmandi sé. Af slíkri kennslu mundi spretta sú eina þjóðrækni, sem um- talsverð er. Og þá á ég ekki við þessa danahaturs-sagn- fræði sem tíðkazt hefur, né þá þurrpumpuðu íslenzku, sem allsráðandi er í útvarpsþátt- um um „rétt mál“ og margdauð fornyrði — og ýmsir kennarar virðast sérlega veikir fyrir, þó að hún eigi lítið skylt við líf og grósku — þá líðandi stund, sem vex á vörum fólksins. Þetta sérfræðingamál verkar á mann eins og skammstafanir á ljósaauglýsingum, þar sem allt lýtur lágum lögmálum. 23
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.