Samvinnan - 01.08.1967, Side 25

Samvinnan - 01.08.1967, Side 25
UM SKOLABYGGINGAR OG FLEIRA Árlega er varið rúmlega hálfum milljarði króna til skólamála á íslandi, sem er sízt of mikið þegar hugleitt er hvílík verð- mæti eru fólgin í góðri mennt- un. Hinsvegar er miklu af þessu fé þannig ráðstafað að stappar nærri handahófi. Haldið er t. d. uppi fræðslumálaskrifstofu sem gegnir engu eiginlegu hlutverki í fræðslukerfinu öðru en því að hafa milligöngu um ráðningu kennara, skólastjóra og annarra starfsmanna, raða í launaflokka, úthluta orlofum, semja „landspróf" fyrir 12 og 14 ára börn o. þ. u. 1. Fjármála- stjórn hefur verið tekin úr höndum hennar og hún gegnir alls engu skipulagshlutverki. í rauninni er fræðslumálaskrif- stofan einskonar botnlangi frá dögum alþýðufræðslunnar, þegar ekki var til neitt menntamálaráðuneyti, og al- gerlega óþörf stofnun í skóla- kerfi nútímans. Ef nokkurt vit ætti að vera í störfum fræðslu- málastjóra, ætti hann að vera kosinn fulltrúi kennarasam- takanna til að koma á fram- færi sjónarmiðum og tillögum skólamanna og hafa eftirlit með athöfnum stjórnmála- manna og stjórnarvalda. Þess í stað eru flestar tillögur kenn- arasamtakanna eilíflega salt- aðar hjá fræðslumálastjóra. Einn af starfsmönnum fræðslumálaskrifstofunnar er íþróttafulltrúi ríkisins, sem hefur úrslitavald um byggingu allra íþróttamannvirkja í skól- um landsins. Hann virðist ekki bera neitt skynbragð á nota- gildi slíkra mannvirkja, hag- kvæma og ódýra tilhögun, en virðist leggja mest upp úr því að byggt sé sem dýrast, með þeim afleiðingum að mörg sveitarfélög eru að sligast und- ir slíkum byggingum. Á Dalvík var t. d. íþróttahús í byggingu ein sex eða sjö ár, og um tíma leit út fyrir að hreppsnefndin legði hreinlega árar í bát. í Mosfellssveit er til teikning íþróttahúss fyrir Varmárskóla, en þar hillir ekki undir fram- kvæmdir vegna fjárskorts. Skólabyggingar eru sérstakur kafli íslenzkra skólamála sem taka ætti til rækilegrar athug- unar. Margir þeir húsameistar- ar, sem teiknað hafa íslenzka skóla, virðast alls ekki hafa gert sér það ómak að kanna hvers konar byggingar skóla- starf útheimtir, hvað þar eigi að vera og hvernig því skuli fyrir komið. Sem dæmi má nefna, að í hverjum einasta dönskum barnaskóla er sérstök föndurstofa, þar sem börnin læra að fara með liti og form, einskonar inngangur að list- menntun. Föndurstofan er ekki einu sinni til sem hugmynd í sambandi við íslenzka barna- skcla. Svipaða sögu er að segja um húsnæði fyrir ýmsar sér- hæfðar námsgreinar, svo sem tínlistarkennslu, matreiðslu- Aust-urbæ j arbarnaskólinn. Melaskólinn. Menntaskólinn við Hamrahlíð. Varmárskóli. kennslu, sund og jafnvel leik- fimi. Húsnæðið er hreinlega ekki til. Það er með öðru til marks um þann kotungsbrag í opinberum framkvæmdum sem komið hef- ur í kjölfar velmegunar og lífs- þæginda, að á kreppuárunum voru reistir skólar á borð við Austurbæjarbarnaskólann í Reykjavík með nauðsynlegu húsnæði fyrir nálega allar kennslugreinar, en margir skólar veltuáranna búa við sár- asta skort, bæði að því er varð- ar húsnæði og kennslutæki. Þetta mun meðfram stafa af því að hér skortir samræmda áætlanagerð og skilning skóla- manna á því, hvernig beri að haga skólastarfi. Ein gleðileg undantekning frá þessari leiðu reglu er Guðmundur .Arnlaugs- son rektor Menntaskólans við Hamrahlíð, sem veit hvað hann vill, hvernig skólahúsnæði hann vill fá og hvaða starfsemi á að fara þar fram, enda vekur byggingin athygli fyrir einfald- leik og hagkvæmt fyrirkomu- lag. Melaskólinn í Reykjavík hefur lengi verið stolt borgar- yfirvaldanna, enda gott hús, en mikið hefði mátt spara þar í rúmi og kostnaði með skyn- samlegri teikningu. Sígilt dæmi um bruðl og handahóf er Varmárskóli við Brúarland með bremur bökum, þremur hálf- hæðum, frámunalega óhentug- um gluggum — sem allt eykur stórlega á byggingar- og við- haldskostnað. Skólar af sömu gerð munu hafa verið reistir víðar. Á Kolviðarnesi í Hnappadalssýslu hefur verið reistur heimavistarskóli, sem örnefnanefnd hefur gefið lág- kúruheitið Laugargerðisskóli. Þessi bygging var rándýr, kost- aði 21 milljón króna, og má se<?ia að þar hafi verið helzti mikið í borið, en henni er ákaf- lega haganlega fyrir komið, hannig að hún nýtist vel og er tiltöiulega ódýr í viðhaldi og rekstrl. Svipaðar skólabvgging- ar hafa verið reistar víðar. Á síðasta ári var 175 millión- um króna varið til skólahygg- inga, og mætti ætla að fvrir bá urmhæð fengiust nokkrir álit- legir skólar á ári hveriu. ekki sízt ef horfið væri að hví ráði ? stærri stil en gert er að sam- eina skólahéruð og reisa stærri skóla. Efnahagsstofnuninni hefur verið falið að reikna út harf'r fvrir skólahúsnæði í landinu. en hegar hún hóf hað ot.a.rf hafði aldrei frá urmhafi ísla.ndshvggðar verið tekið saman, hve mikið skólahús- pæði væri til! 25

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.