Samvinnan - 01.08.1967, Side 30

Samvinnan - 01.08.1967, Side 30
Skólaríkið Myndin til vinstri er lir járnsmiðju nemenda í Salem, en hin myndin er af sjóbörgunarsveit nemenda á æfingn. innræta nemendum sjálfsagaj sem er eitt meginskilyrði sjálfs- tjáningar. Jafnskjótt og nem- endur hafa fundið styrk sinn — en ekki fyrr — er þeim kom- ið í kynni við veikleika sína, því ósigrar eru jafnómissandi og sigrar í góðu uppeldi. Enn- fremur leggur Hahn ríka áherzlu á holla fæðu og fagurt umhverfi skólans. í öndverðu voru nemendur í Salem aðeins 24 talsins, en eru nú 500. Hluti þeirra stundar nám við þrjá skóla sem eru ná- tengdir Salem. Á undanförnum áratugum hafa hugmyndir Hahns fest rætur víða um heim, og eru skólar hans nú starfandi í þremur heimsálfum. Honum var sjálfum vísað burt frá Þýzkalandi, þegar Hitler kom til valda, settist að í Bretlandi 1933 og stofnsetti hinn heims- kunna skóla í Gordonstoun í Norður-Skotlandi þar sem 500 nemendur eru nú við nám. Meðal nemenda frá Gordons- toun er hertoginn af Edinborg. Eftir seinni heimsstyrjöld sneri Hahn aftur heim til Þýzkalands, en dvelst árlega nokkra mánuði í Bretlandi, enda eru margir skólar hans starfandi þar. Hann er orðinn 81 árs gamall. Grundvallarhugmyndin í skólakerfi Hahns er samstjórn nemenda. Þeir mynda svonefnt „skólaríki" þar sem höfuð- áherzla er lögð á ábyrgðartil- finningu, þegnskap, sjálfsaga og tillit til annarra. Nemendur bera sjálfir ábyrgð á aga í skól- anum, námi sínu og vinnu. Undir handleiðslu hæfra kenn- ara verður hér um að ræða sjálfsnám sem er ævinlega af- farasælasta menntaleiðin. Tilhögun „skólaríkisins”, t. d. í Salem, er með þeim hætti, að nemendur „komast áfram" fyrir dugnað, árvekni og ein- beitni. Jafnvel 10 ára gömul skólabörn hafa skyldum að gegna í heimavist, eldhúsi, skólagarði og á leikvelli. Þau fá ekki að klæðast gráum ein- kennisbúningi skólans fyrr en eldri nemendur eru ánægðir með þau. Haldi þau áfram að taka framförum, komast þau kannski í hóp þeirra sem fá að ganga með fjólubláan ein- kennisborða skólans á hand- leggnum. Þessi úrvalshópur kýs sjálfur nýja meðlimi, og þarf tvo þriðju hluta atkvæða til að ná kosningu. Allt að þriðjungi hópsins getur setið hjá við at- kvæðagreiðslu, en gagnatkvæði felur í sér neitunarvald. Þeir sem ganga með ein- kennisborðann eru „hjálpar- menn“ og skólastjóra til beinn- ar aðstoðar við daglegan rekst- ur skólans. Þeir gæta þess að aðrir nemendur ræki skyldur sínar, en fyrst og fremst ber þeim að vera fyrirmyndir ann- arra um breytni og ástundun. Refsingar skólayfirvalda tíðk- ast ekki í Salem, því sjálfsaginn er einn af hornsteinum „skóla- ríkisins“. Nemendur eiga ekki að verða uppvísir að yfirsjón- um, heldur játa þær sjálfvilj- ugir, og er það þáttur í mótun persónuleikans. 30

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.