Samvinnan - 01.08.1967, Page 53
o
Þessir leikarar hafa hlotið Silfurlampann þau þrettán skipti sem hann hefur verið veittur:
1954: Haraldur Björnsson fyrir prófessor Klenow í Þeim sterkasta eftir Karen Bramson. Þetta sinn fylgdi nokkur fjárupp-
hæð Silfurlampanum sjálfum, gefin af tímaritinu Helgafelli; en ekki hefur sú rausn orðið öðrum fordæmi síðan.
1955: Valur Gíslason fyrir Harry Brock í Fædd í gær eftir Garson Kanin.
1956: Róbert Arnfinnsson fyrir Svejk í Góða dátanum Svejk eftir Jaroslav Hasek.
1957: Þorsteinn Ö. Stephensen fyrir Crocker-Harris í Browning-þýðingunni eftir Terence Rattigan.
1958: Valur Gíslason, öðru sinni, fyrir riddaraliðsforingjann í Föðurnum eftir August Strindberg.
1959: Brynjólfur Jóhannesson fyrir Joe Keller í Öllum sonum mínum eftir Arthur Miller.
1960 voru verölaunin ekki veitt.
1961: Guðbjörg Þorbjarnardóttir fyrir Elísu Gans í Engill horfðu heim eftir Thomas Wolfe.
1962: Steindór Hjörleifsson fyrir Jonna Pope í Kviksandi eftir Michael Vincente Gazzo.
1963: Gunnar Eyjólfsson fyrir Pétur Gaut eftir Henrik Ibsen.
1964: Helgi Skúlason fyrir Franz Gerlach í Föngunum í Altóna eftir Jean-Paul Sartre.
1965: Gísli Halldórsson fyrir tvö hlutverk í Þjófum, líkum og fölum konum, þremur einþáttungum eftir Dario Fo.
1966: Þorsteinn Ö. Stephensen, öðru sinni, fyrir pressarann í Dúfnaveizlunni eftir Halldór Laxness.
1967: Lárus Pálsson fyrir Jeppa á Fjalli eftir Ludvig Holterg.
1954
1959
1964
1955 (1958)
1965
1956
1957 (1966)
1963
<-« Lárus Pálsson 1967
fyrir Jeppa á Fjalli
eftir Ludvig Holberg.
53